Hoppa yfir valmynd
27. janúar 2016 Innviðaráðuneytið

Drög að breytingu á lögum um flugvernd, siglingavernd og á vopnalögum til umsagnar

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um flugvernd, siglingavernd og vopnalögum eru nú til umsagnar hjá innanríkisráðuneytinu. Umsagnarfrestur er til og með 4. febrúar næstkomandi og skulu umsagnir sendar á netfangið [email protected].

Eldra frumvarp sama efnis var lagt fram á 143. löggjafarþingi og fékk nokkra gagnrýni í umsagnarferli hjá umhverfis- og samgöngunefnd. Frumvarpinu hefur verið breytt til að koma til móts við athugasemdir sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis bárust í þinglegri meðferð, þá sér í lagi athugasemdir Persónuverndar. Eldra frumvarp var talsvert gagnrýnt, sérstaklega ákvæði er varða bakgrunnsskoðun. Því er meginbreytingin á frumvarpinu frá eldra frumvarpi fólgin í þeim ákvæðum frumvarpsins.

Í drögunum eru lagðar til nokkrar breytingar á gildandi lögum um siglingavernd annars vegar og lögum um loftferðir hins vegar. Jafnframt eru lagðar til smávægilegar breytingar á vopnalögum.

Fyrst og fremst er um að ræða breytingar sem eru til komnar vegna endurtekinna tilrauna einstaklinga til að brjótast inn á afmörkuð hafnarsvæði og haftasvæði flugverndar með það að markmiði að gerast laumufarþegar. Í mörgum tilvikum hefur lögregla handtekið þá einstaklinga, fært þá til yfirheyrslu en sleppt að henni lokinni og þeir gert aðra tilraun til að komast inn á lokað hafnar- eða flugvallarsvæði. Þá hafa þeir í sumum tilvikum verið kærðir en svo virðist sem þeir fremji engu að síður endurtekin innbrot á svæðin. Er með frumvarpinu lagt til að kveðið verði skýrt á um það að óheimilt sé að fara inn á slík svæði, um borð í loftfar eða skip nema með tilskildum heimildum að viðlagðri refsingu, geri menn slíkt án heimildar.

Breytingarnar á vopnalögum fela fyrst og fremst í sér heimild til handa flugrekendum að eiga viðunandi búnað til að geta brugðist við því þegar ólátafarþegar fara mikinn um borð í loftförum og áhafnir flugvéla þurfa að geta brugðist við ósæmilegri hegðun með öruggum og fumlausum hætti. Flugrekendum er því veitt heimild til að geta átt um borð í loftförum sínum hand- og fótajárn til að geta brugðist við slíkum aðstæðum sem geta valdið verulegri ógn við flugvernd og flugöryggi ef ekkert er að gert.

Þá er lagt til með frumvarpinu að Samgöngustofu verði færð heimild til að leggja á stjórnvaldssektir eða dagsektir fyrir aðgangsbrot eða seinagang í að skila upplýsingum til eftirlitsaðila o.s.frv. Er þessi breyting m.a. lögð til svo koma megi til móts við athugasemdir Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA. Eftirlitsstofnunin hefur verið á þeirri skoðun að úrræði skorti til handa Samgöngustofu til að beita við eftirlitshlutverk sitt og er breytingin sett fram m.a. til að koma til móts við þær ábendingar.

Einnig er lögð til breyting á lögum um siglingavernd vegna vandkvæða tollstjóra við að fylgja eftir reglum um farmvernd en talin er þörf á styrkari stoð í lögum um siglingavernd fyrir refsiákvæði í reglunum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta