Aðferðir við mat á sjálfbærni ferðaþjónustu á Norðurlöndunum
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið leiddi verkefnið „Monitoring Sustainability in Nordic Tourism“ sem var unnið í samstarfi allra Norðurlandanna með styrk frá Norrænu ráðherranefndinni.
Í verkefninu eru stefna og aðgerðir við mat á áhrifum ferðaþjónustu á umhverfi, samfélag og atvinnulíf á Norðurlöndunum skoðaðar og gerðar tillögur um hvernig styðja megi betur við aukna sjálfbærni og virði greinarinnar. Kastljósinu er beint að þeirri sérfræðiþekkingu sem þegar er til staðar á Norðurlöndunum og hvernig best megi styðja við aðgerðir sem auka sjálfbærni í ferðaþjónustu fyrir íbúa og samfélög þar sem hún á sér stað.
Áður en heimsfaraldur COVID-19 skall á með fullum þunga var ferðaþjónusta sú atvinnugrein sem óx hvað hraðast á heimsvísu. Mikilvægi greinarinnar fyrir atvinnusköpun, útflutningstekjur og verðmætasköpun hafði farið mjög vaxandi um árabil og um leið urðu áhrif greinarinnar á umhverfi og samfélög greinilegri og umdeildari.
Heimsfaraldurinn lagðist sérstaklega þungt á ferðaþjónustu um allan heim, með þeim afleiðingum að innviðir og nýsköpunarhæfni fyrirtækja hafa veikst mjög. Að sama skapi hefur þörfin fyrir nýjar leiðir, nýsköpun, sjálfbærni og aukið virði í ferðaþjónustu aldrei verið meiri en nú.