Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2022 Matvælaráðuneytið

Snarpar umræður í Vestmannaeyjum á fundi Auðlindarinnar okkar

Snarpar umræður í Vestmannaeyjum á fundi Auðlindarinnar okkar  - myndEyjafréttir/Ómar Garðarsson

Líflegar umræður og skoðanaskipti áttu sér stað á vel sóttum þriðja fundi fundaraðarinnar Auðlindin okkar sem haldinn var 8. nóvember í Akóges-salnum í Vestmannaeyjum. Umhverfis- og loftlagsmál, hafrannsóknir, stafræn þróun, fyrirsjáanleiki, orðspor sjávarútvegs, samfélagssátt, strandveiðar, orkuskipti og byggðakvóti voru fundargestum ofarlega í huga.

Líkt og á fundunum á Ísafirði og Eskifirði var þátttaka góð í umræðum, bæði í sal og í gegnum streymið. Fundarstjóri var Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Rebekka Hilmarsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu sjávarútvegs og fyrrum bæjarstjóri Vesturbyggðar, kynnti verkefnið Auðlindin okkar og vinnu starfshópanna Aðgengi, Samfélag, Tækifæri og Umgengni. Á þriðja þúsund áhorfenda hafa nú fylgst með streymi frá fundaröðinni.

Auk fjölmargra fundargesta sem tóku þátt í umræðum tóku einnig þátt í fundinum þau Jónas Rúnar Viðarsson, sviðsstjóri Matís og fulltrúi í starfshópnum Umgengni, Friðrik Árni Friðriksson, framkvæmdastjóri hjá Lagastofnun Háskóla Íslands og fulltrúi í starfshópnum Aðgengi, Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans og fulltrúi í starfshópnum Tækifæri, Gunnar Haraldsson, framkvæmdastjóri Intellecon og formaður starfshópsins Samfélag, Óskar Veigu Óskarsson, sölustjóri Marel og fulltrúi í starfshópnum Tækifæri og Benedikt Árnason ráðuneytisstjóri matvælaráðuneytis.

Næsti og síðasti fundur Auðlindarinnar okkar verður haldinn í Hofi á Akureyri 15. nóvember.

Öll þau sem láta sig málefni auðlindarinnar og sjávarútvegsins varða eru hvött til að fylgjast með fundinum, hægt verður að senda inn athugasemdir og fyrirspurnir í streymi.

Streymið af fundunum á Ísafirði, Eskifirði og í Vestmanneyjum má sjá á audlindinokkar.is ásamt ítarlegri upplýsingum um verkefnið.


  • Snarpar umræður í Vestmannaeyjum á fundi Auðlindarinnar okkar  - mynd úr myndasafni númer 1
  • Snarpar umræður í Vestmannaeyjum á fundi Auðlindarinnar okkar  - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

12. Ábyrð neysla og framleiðsla
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
14. Líf í vatni
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta