Umsækjendur um embætti hæstaréttardómara
Fjórar umsóknir bárust um embætti hæstaréttardómara en umsóknarfrestur rann út 18. júní sl.
Fjórar umsóknir bárust um embætti hæstaréttardómara en umsóknarfrestur rann út 18. júní sl. Umsækjendur eru Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari, Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari, Viðar Már Matthíasson, settur hæstaréttardómari, og Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg.
Skipað verður í embættið frá og með 1. ágúst 2010 í samræmi við lög nr. 45/2010.