Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2008 Dómsmálaráðuneytið

Sigríður Björk Guðjónsdóttir skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Sigríði Björk Guðjónsdóttur, aðstoðarríkislögreglustjóra, í embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum frá og með 1. janúar 2009.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Sigríði Björk Guðjónsdóttur, aðstoðarríkislögreglustjóra, í embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum frá og með 1. janúar 2009. Umsóknarfrestur rann út 11. nóvember síðastliðinn.

Aðrir umsækjendur um embættið voru Alda Hrönn Jóhannsdóttir, löglærður fulltrúi lögreglustjórans á Suðurnesjum, Ásgeir Eiríksson, fulltrúi og staðgengill sýslumannsins í Keflavík, og Halldór Frímannsson, sérfræðingur – lögmaður á fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta