Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið
Skipuð hefur verið ný Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið sem hefur það hlutverk að fylgja eftir nýrri stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum upplýsingasamfélagsins. Verkefnisstjórnin er skipuð fulltrúum fjármálaráðuneytis, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis, samgönguráðuneytis, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta, auk fulltrúa forsætisráðuneytis sem jafnframt er formaður verkefnisstjórnarinnar.
Helstu verkefni verkefnisstjórnar eru eftirfarandi:
- Að fylgja eftir heildarstefnu ríkisstjórnarinnar um málefni upplýsingasamfélagsins.
- Að stuðla að því að íslensk stjórnvöld, atvinnulíf og almenningur hagnýti sér kosti sem leiða af örri framþróun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.
- Að vera vettvangur fyrir og leiða samstarf ráðuneytanna á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.
- Að leita eftir samstarfi við aðila utan ríkiskerfisins, einkum sveitarfélög, fyrirtæki og félagasamtök, um málefni upplýsingasamfélagsins.
- Að fylgja eftir sérstökum áherslum ríkisstjórnar á þessu sviði.
- Að vera ráðgefandi fyrir ríkisstjórn um fjárveitingar til þessara mála.
Verkefnisstjórnin mun jafnframt f.h. íslenskra stjórnvalda taka þátt í ýmsu erlendu samstarfi varðandi málefni upplýsingasamfélagsins.
Einnig er starfandi samráðsnefnd sem er vettvangur samstarfs ráðuneyta á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni. Samráðsnefndin vinnur með verkefnisstjórn og er skipuð fulltrúum allra ráðuneyta sem eru tengiliðir verkefnisstjórnar við ráðuneytin.
Eftirtaldir aðilar sitja í verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið:
- Guðbjörg Sigurðardóttir, forsætisráðuneyti, formaður,
- Angantýr Einarsson, fjármálaráðuneyti,
- Ingimar Einarsson, heilbrigðisráðuneyti,
- Sigurbergur Björnsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti,
- Kristín Jónsdóttir, mennta- og menningarmálaráðuneyti,
- Með verkefnisstjórn starfar Halla Björg Baldursdóttir, forsætisráðuneyti.
Varamenn
- Haraldur Bjarnason, fjármálaráðuneyti,
- Gunnar Alexander Ólafsson, heilbrigðisráðuneyti,
- Ásgerður Kjartansdóttir, mennta- og menningarmálaráðuneyti,
- Marta Birna Baldursdóttir, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti.