Hoppa yfir valmynd
22. október 2024

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna alþingiskosninga 30. nóvember 2024

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna alþingiskosninga 30. nóvember 2024 - myndHaraldur Jónasson / Hari

Kosning utan kjörfundar erlendis vegna alþingiskosninga 30. nóvember 2024 hefst 7. nóvember og fer fram skv. ákvæðum 70. gr. kosningalaga nr. 112/2021.

Kjörstaðir eru:

•           Allar sendiskrifstofur Íslands (nema fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu í Brussel),
•           aðalræðisskrifstofur í Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk,
•           hjá kjörræðismönnum.

Kjósendum er bent á að skoða vefsíður og samfélagsmiðla sendiskrifstofa til að sjá opnunartíma fyrir kosningar en hafa beint samband við kjörræðismenn hyggist þeir kjósa hjá þeim. Sjá upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands og kjörræðismenn eftir löndum.

Í sendiráði Íslands í París verður hægt að kjósa alla virka daga frá 9:30-16:30.  Kjósendur þurfa að gera grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa skilríkjum. 

Kjósandi ber ábyrgð á að koma atkvæðinu sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Huga þarf tímanlega að póstsendingum atkvæða. 

Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis skemur en 16 ár (talið frá 1. desember árið áður en kosningar eru haldnar) eru sjálfkrafa með kosningarétt á Íslandi. Þeir þurfa að vera orðnir 18 ára á kjördag og hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi.

Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf hann að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Ef umsækjandi uppfyllir skilyrðin verður hann skráður á kjörskrá til næstu fjögurra ára á eftir. Ef ekki var sótt um fyrir 1. desember síðastliðinn geta þeir sem hafa haft lögheimili erlendis, lengur en 16 ár, ekki kosið í alþingiskosningunum.

Á Ísland.is eru upplýsingar um alþingiskosningarnar, bæði á íslensku og ensku.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta