Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 77/2013.

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 21. janúar 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 77/2013.

 

1.
Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 30. júlí 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans þar sem hann hafi verið við vinnu við leigubílaakstur samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hafi starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að viðbættu 15% álagi, fyrir tímabilin 25. maí til 5. júní, 9. júní til 23. júlí, 26. júlí til 17. ágúst, 20.‒28. ágúst, 15.‒24. október og 5. nóvember til 12. desember 2012 samtals að fjárhæð 735.345 kr. með 15% álagi. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 13. ágúst 2013. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 3. apríl 2012.

Við samkeyrslu á gagnagrunnum Vinnumálastofnunar og Vegagerðarinnar sem fram fór í júní 2013 kom upp að kærandi hafi starfað við akstur leigubíla á árinu 2012 samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa tilkynnt það til stofnunarinnar.


 

 

Vinnumálastofnun óskaði með bréfi, dags. 3. júlí 2013, eftir því að kærandi gerði grein fyrir þeim tekjum er hann hafði á sama tíma og hann þáði atvinnuleysisbætur. Kærandi sendi stofnuninni tölvupóst 15. júlí 2013, með skýringum. Í skýringum sínum greinir kærandi frá því að hann hafi haft samband við Vinnumálastofnun til að athuga með leigubílaakstur samhliða töku atvinnuleysisbóta. Kærandi kveðst hafa fengið þær upplýsingar hjá starfsmanni stofnunarinnar að hann þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur þar sem um svo litlar tekjur væri að ræða að þær myndu ekki skerða bæturnar til hans.

Kæranda var send hin kærða ákvörðun í bréfi, dags. 30. júlí 2013.

Vinnumálastofnun barst tölvupóstur frá kæranda 1. ágúst 2013 þar sem hann ítrekar að hann hafi verið búinn að spyrjast fyrir hjá Vinnumálastofnun um hver áhrif þess yrðu ef hann myndi aka leigubíl samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og hann hafi fengið þau svör að þar sem tekjurnar væru það lágar myndi það ekki hafa áhrif. Kærandi furðar sig á vinnubrögðum stofnunarinnar.

Vinnumálastofnun leit svo á að kærandi væri að óska eftir því að mál hans yrði tekið fyrir að nýju en stofnunin taldi að skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, um endurupptöku mála væru ekki uppfyllt. Vinnumálastofnun barst beiðni kæranda í tölvupósti 13. ágúst 2013 um rökstuðning fyrir ákvörðuninni og var kæranda birtur hann með bréfi, dags. 14. ágúst 2013.

 

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru að honum hafi verið boðið að keyra leigubíl á nóttinni til að grynnka á skuldum sem hafi safnast upp á meðan hann var atvinnulaus. Áður en hann þáði vinnuna hafi hann haft samband við Vinnumálastofnun og þar hafi honum verið sagt að hann þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur og atvinnuleysisbætur til hans myndu ekki skerðast þar sem um svo lágar tekjur væri að ræða. Alls hafi hann haft 342.000 kr. á tímabilinu sem sé langt undir frítekjumörkum sem séu um 52.632 kr. á mánuði sem honum hafi verið sagt að hann mætti hafa.

 


 

 

Í greinargerð til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 28. ágúst 2013, bendir Vinnumálastofnun á að lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Málið lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar sem tilkynnt hafi verið með bréfi, dags. 30. júlí 2013, þar sem kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hafi honum einnig verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun vísar til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og bendir á að annar málsliður taki á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín.

Stofnunin bendir einnig á 10. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Í 13. gr. laganna segi að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. sömu laga sé að finna nánari útfærslu á því hvað telst til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfar á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hafi kærandi verið við störf sem leigubílstjóri á árinu 2012 samhliða því að þiggja greiðslur atvinnuleysisbóta og án þess að hafa tilkynnt um störf sín til Vinnumálastofnunar. Í skýringarbréfi sínu, dags. 15. júlí 2013, og í rökstuðningi fyrir kæru tilgreini kærandi að hann hafi tilkynnt um vinnu sína sem leigubílstjóri árið 2012 en hafi fengið þau svör frá starfsmanni Vinnumálastofnunar að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur þar sem um væri að ræða svo lágar tekjur að það kæmi ekki til með að skerða atvinnuleysisbætur til hans. Vinnumálstofnun bendir á að ekki sé unnt að ráða af samskiptasögu kæranda við stofnunina að hann hafi haft samband við hana og látið vita um fyrirhuguð störf sín. Stofnuninni hafi fyrst orðið kunnugt um störf kæranda við reglubundið eftirlit og samkeyrslu á gagnagrunnum stofnunarinnar og Vegagerðarinnar í júní 2013. Stofnunin fellst því ekki á skýringar kæranda á því af hverju hann hafi ekki tilkynnt um störf sín við leigubílaakstur, líkt og honum bar að gera skv. 10. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Enn fremur geti Vinnumálastofnun ekki fallist á að viðbrögð stofnunarinnar við tilkynningu við vinnu atvinnuleitanda, séu með þeim hætti sem fram komi í skýringum kæranda, það er að ekki sé skráð færsla í samskiptasögu um tilkynningu um viðkomandi starf, starf ekki skráð í tölvukerfi stofnunarinnar eða að atvinnuleitanda sé tjáð að óráðnar tekjur myndu ekki koma til skerðingar á atvinnuleysisbótum.

Vinnumálastofnun vekur athygli á því að á kynningarfundum hjá stofnuninni, í bæklingi sem allir umsækjendur fá þegar þeir staðfesta rafræna skráningu sína og á heimasíðu stofnunarinnar séu veittar upplýsingar um það að tilkynna þurfi allar þær tekjur eða aðrar breytingar sem verða á högum atvinnuleitanda er tengjast vinnufærni og möguleikum þeirra á að taka starfi. Það liggi fyrir að kærandi sótti kynningarfund á vegum stofnunarinnar 17. apríl 2012.

Í málinu liggi fyrir að kærandi starfaði við akstur leigubifreiða á meðan hann þáði greiðslu atvinnuleysistrygginga. Vinnumálastofnun barst ekki tilkynning frá kæranda vegna vinnu hans. Stofnunin telur að öllum ætti að vera ljóst að atvinnuleitandi sem þiggi greiðslu atvinnuleysistryggingar beri skylda til að tilkynna vinnu til Vinnumálastofnunar um leið og hann hefur störf. Eigi það jafnt við um störf sem eru tilfallandi, hlutastörf eða í því tilfelli sem viðkomandi hefur hætt atvinnuleit að öllu leyti.

Vinnumálastofnun telur í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitanda til að tilkynna um tilfallandi vinnu til stofnunarinnar, sbr. 35. gr. a laganna, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 30. ágúst 2013, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum til 13. september 2013. Umrætt bréf úrskurðarnefndarinnar kom endursent 18. september 2013 til nefndarinnar og sendi nefndin kæranda bréfið ásamt gögnum málsins í tölvupósti 18. september 2013. Var kæranda veittur frestur til að koma að frekari athugasemdum til 22. september 2013.

 

 

 

Athugasemdir kæranda bárust til úrskurðarnefndarinnar í tölvupósti 21. september 2013, en þar kemur meðal annars fram að kærandi furði sig á vinnubrögðum Vinnumálastofnunar um að hafa ekki veitt honum réttar upplýsingar.

 

Með tölvupósti úrskurðarnefndarinnar 2. október 2013, var kæranda tilkynnt um að mál hans myndi tefjast hjá nefndinni sökum mikils málafjölda.

 

 

2.
Niðurstaða

Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með hliðsjón af mikilvægi ákvæðisins við framkvæmd atvinnuleysistryggingakerfisins þykir réttlætanlegt að varpa ítarlegu ljósi á forsögu þess og tilgang. Markmiðið með þessu er að setja fram skýr viðmið um hvernig beri að túlka ákvæðið.

Þegar lög um atvinnuleysistryggingar voru upphaflega sett var kveðið á um þá meginreglu í fyrstu málsgrein 60. gr. laganna að sá sem aflar sér eða reynir að afla sér atvinnuleysisbóta samkvæmt lögunum með svikum getur misst rétt sinn í allt að tvö ár og þurft að sæta sektum. Það var hvergi skýrlega skilgreint hvað væru svik í skilningi ákvæðisins og er sú ályktun nærtæk að ákvæðinu hafi sjaldan verið beitt fram til þess tíma sem því var breytt með setningu 23. gr. laga nr. 134/2009. Þessi nýja regla tók gildi 1. janúar 2010 og veigamesti tilgangur hennar var að sporna gegn „svartri atvinnustarfsemi“.


 

Í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009 kom meðal annars fram að beita ætti ákvæðinu í þrenns konar tilvikum, í fyrsta lagi þegar atvinnuleitandi veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögunum, í öðru lagi þegar atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. laganna og í þriðja lagi þegar atvinnuleitandi verður uppvís að þátttöku á vinnumarkaði án þess að hafa tilkynnt um tilfallandi vinnu, sbr. nú 35. gr. a.

 

Með setningu 4. gr. laga nr. 103/2011 var orðalagi fyrsta málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar breytt. Frá og með 3. september 2011 hefur ákvæðið verið svohljóðandi:

 

Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

 

Þegar þessi texti er skýrður er óhjákvæmilegt að horfa til þeirra athugasemda sem vitnað var hér til að framan um 23. gr. laga nr. 134/2009. Þannig er ljóst að fyrsti málsliður ákvæðisins á við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir annan málslið ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að annar málsliðurinn tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku.

Sérstök ástæða er til að taka fram að orðalagið „[h]ið sama gildir“ í upphafi annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vísar einvörðungu til viðurlaganna sem upp eru talin í fyrsta málslið ákvæðisins en ekki til þeirra huglægu skilyrða sem þar þurfa að vera uppfyllt. Þessi túlkun byggir meðal annars á því að greiðsla atvinnuleysisbóta er ekki ætluð þeim sem sinna störfum á vinnumarkaði og því teljast það svik í skilningi annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ef atvinnuleitandi sinnir starfi á vinnumarkaði án þess að láta Vinnumálastofnun vita af því með þeim hætti sem kveðið er á um í 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Þessi skilningur er í samræmi við orðalag annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og fær einnig stoð í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009.

Hvort sem háttsemi fellur undir fyrsta eða annan málslið 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eru viðurlög við bótasvikum ströng en þau fela í sér að atvinnuleitanda ber ekki að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Jafnframt ber atvinnuleitanda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr. laganna, sbr. lokamálslið 60. gr. laganna.

Samkvæmt gögnum málsins, sbr. meðal annars upplýsingum frá kæranda sjálfum, starfaði hann við leigubílaakstur á árinu 2012. Kærandi greinir frá því að hann hafi haft samband við Vinnumálastofnun símleiðis og fengið þær upplýsingar að hann mætti starfa fyrir allt að 52.000 kr. á mánuði. Af gögnum málsins verður á hinn bóginn ekki ráðið að kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um leigubílaaksturinn, þ.e. um hina tilfallandi vinnu í skilningi 35. gr. a. Í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að upplýsa Vinnumálastofnun um breytingar á högum viðkomandi eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, eins og námsþátttöku og tekjur fyrir tilfallandi vinnu. Þá er atvinnuleitanda skv. 10. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skylt að tilkynna til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar þegar hann hættir virkri atvinnuleit. Að mati úrskurðarnefndarinnar getur kærandi ekki borið fyrir sig vankunnáttu í lögunum þar sem víðtækar upplýsingar um stöðu atvinnuleitenda liggja fyrir, meðal annars á heimasíðu Vinnumálastofnunarinnar. Þar kemur skýrt fram að atvinnuleitanda ber að veita nákvæmar upplýsingar um hagi sína, meðal annars vegna tilfallandi tekna. Fyrir liggur að kærandi sótti kynningarfund á vegum Vinnumálastofnunar 17. apríl 2012.

Í 36. gr. laga um atvinnuleysisbætur er fjallað um frádrátt vegna tekna bótaþega, meðal annars vegna tilfallandi vinnu. Í 4. mgr. ákvæðisins segir að frítekjumark tekna sé 59.047 kr. á mánuði, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 1219/2008 um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga. Þessi ákvæði hafa engin áhrif á þær reglur er gilda um tilfallandi vinnu. Ekki er því unnt að túlka reglur um frítekjumark á þann veg að ekki þurfi að tilkynna um tilfallandi vinnu nema laun fyrir hana fara upp fyrir áðurnefnt frítekjumark.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda, sem kveðið er á um í 35. gr. a sömu laga, verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Háttsemi kæranda hefur því réttilega verið heimfærð til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að sæta viðurlögum þeim sem þar er kveðið á um, enda var hann starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann þáði atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu eða að atvinnuleit hafi verið hætt. Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

Kæranda ber einnig að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilin 25. maí til 5. júní, 9. júní til 23. júlí, 26. júlí til 17. ágúst, 20.‒28. ágúst, 15.‒24. október og 5. nóvember til 12. desember 2012 samtals að fjárhæð 735.345 kr. en inni í þeirri fjárhæð er 15% álag skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Athuga ber að í hinni kærðu ákvörðun, dags. 30. júlí 2013, eru nokkrir dagar sem kærandi var við störf sem leigubílstjóri tvítaldir en samkvæmt gögnum og upplýsingum sem úrskurðarnefndin aflaði hjá Vinnumálastofnun hafði það ekki áhrif á útreikning ofgreiddra atvinuleysisbóta og var miðað við rétta daga í þeirri fjárhæð.


 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 30. júlí 2013 í máli A þess efnis að hann skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði er staðfest.

Kærandi skal endurgreiða Vinnumálastofnun ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 735.345 kr.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

                        Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta