Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2023 Innviðaráðuneytið

Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, og Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, hafa undirritað samning um stofnun rannsóknaseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum. Með samningnum styður ráðuneytið við uppbyggingu og rekstur setursins, sem starfrækt verður af Háskólanum á Bifröst.

Markmið samningsins er að efla jákvæða byggðaþróun og styrkja sveitarstjórnarstigið á Íslandi með markvissum rannsóknum sem stuðla að hlutlægri og faglegri umræðu og leiða til betri stefnumótunar og ákvarðanatöku. Jafnframt að efla nám og fræðslu um byggða- og sveitarstjórnarmál.

„Öflugar rannsóknir eru mikilvægar til að hægt sé að gera enn betur í málefnum byggða og sveitarstjórna. Rannsóknir leggja grunninn að betri áætlunum og markvissari aðgerðum,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra.

Margrét þakkaði það traust sem Háskólanum á Bifröst væri sýnt. Hún sagði að skólinn myndi leggja áherslu á að skapa þverfaglegan og opinn samstarfsvettvang um byggða- og sveitarstjórnarmál með sérstaka áherslu á samstarf við ráðuneytið, Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitarfélaga.

Samningurinn gildir til þriggja ára eða til ársloka 2025. Árlegt framlag ráðuneytisins verður 12 milljónir kr. sem kemur annars vegar frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og hins vegar í gegnum byggðaáætlun.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta