Matvælaráðherra heldur áfram að heimsækja landsbyggðina
„Þessar heimsóknir hafa verið afskaplega gagnlegar“ sagði ráðherra. „Það er dýrmætt að geta sest niður með íbúum hinna dreifðari byggða og átt við þau samtal í augnhæð um þau mál sem á þeim brenna“
Íbúum gefst kostur á að bóka fund með ráðherra með því að senda póst á [email protected].
Dagsetningar og staðsetning heimsókna:
Miðvikudaginn 25. september - Höfn í Hornafirði - Nýheimum
Fimmtudaginn 26. september – Egilsstöðum - Sláturhúsinu menningarmiðstöð