Styrkir til háskólanáms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi
Stjórnvöld í Þýskalandi bjóða fram styrki handa Íslendingum til að stunda háskólanám og rannsóknastörf í Þýskalandi skólaárið 2013-2014. Auk styrkja til háskólanáms og rannsóknastarfa eru veittir styrkir til tungumálanáms, kynnisheimsókna, starfsþjálfunar á ákveðnum sviðum svo og eru veittir sérstakir styrkir til listamanna. Einnig eru í boði styrkir fyrir fyrrverandi DAAD-styrkþega.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á eftirfarandi vefslóð:
- Frekari upplýsingar veitir einnig Jessica Guse, lektor í þýsku við Háskóla Íslands ([email protected]).
- Umsóknum skal skilað til mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir 7. desember 2012.