Hoppa yfir valmynd
10. september 2020 Utanríkisráðuneytið

UNICEF krefst mannúðlegra lausna fyrir börn á flótta í Grikklandi

Ljósmynd frá Lesbos: UNICEF - mynd

„Staðan sem upp er komin á Lesbos, þar sem þúsundir barna á flótta eru nú heimilislaus eftir eldsvoðann í Moria-flóttamannabúðunum, undirstrikar enn og aftur hversu brýnt það er að finna tafarlaust mannúðlegar lausnir í málefnum barna á flótta í Evrópu þar sem réttindi barna eru virt,“ segir í frétt Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). Samtökin kalla eftir því að börn og aðrir viðkvæmir hópar fólks á flótta verði tafarlaust flutt í öruggt og viðeigandi húsaskjól á meginlandi Grikklands sem hluti af viðbragðsáætlun landsins við útbreiðslu COVID-19.

UNICEF segir að flóttamannabúðirnar á eyjunni Lesbos hafi verið yfirfullar fyrir eldsvoðann og erfitt að verjast kórónaveirusmitum. „Nú þegar búðirnar, sem voru heimili yfir 12 þúsund manns, eru brunnar er enn erfiðara að halda uppi smitvörnum og  því mikil hætta á að veiran geti breiðst hratt út.“ 

Fyrstu viðbrögð eftir brunann af hálfu UNICEF hafa verið þau að koma upp neyðarskýli fyrir meðal annars 150 fylgdarlaus börn en samtökin árétta nauðsyn þess að finna varanleg úrræði fyrir öll þau börn sem eru nú í enn viðkvæmari stöðu en áður.  

UNICEF hefur unnið með fylgdarlausum börnum og barnafjölskyldum á Lesbos um margra ára skeið og sinnir meðal annars barnavernd, fjölskyldusameiningu, forvörnum og viðbrögðum gegn ofbeldi. Auk þess veitir UNICEF börnum aðgang að menntun utan skólakerfisins. „Eftir eldsvoðann er brýn þörf á að útvega fleiri neyðartjöld, hreint vatn og hreinlætisvörur og hjálpa íbúum að verja  sig gegn kórónaveirusmitum,“ segir í frétt UNICEF.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta