Hoppa yfir valmynd
9. október 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 351/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 351/2024

Miðvikudaginn 9. október 2024

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 31. júlí 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 20. júní 2024 um að endurreikningur tekjutengdra bóta vegna ársins 2023 skyldi standa óbreyttur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2023. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 28. maí 2024, var kæranda tilkynnt um að endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna fyrir árið 2023 hafi leitt í ljós ofgreiðslu bóta að fjárhæð 299.269 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Þann 31. maí 2024 sendi kærandi Tryggingastofnun bréf frá Skattinum, dags. 22.05.2024, og með bréfi, dags. 20. júní 2024 tilkynnti Tryggingastofnun að endurreikningurinn skyldi standa óbreyttur.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 31. júlí 2024. Með bréfi, dags. 6. ágúst 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð stofnunarinnar barst með bréfi, dags. 29. ágúst 2024, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. september 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að í ársbyrjun 2021 hafi eiginmaður kæranda selt hús til sonar þeirra. Eiginmaður kæranda hafi verið skráður eigandi að 50% eignarinnar. Þá hafi myndast söluhagnaður að fjárhæð 1.100.000 kr. og skattlagningu hafi verið frestað um tvö ár. Á skattframtali ársins 2024 vegna tekna ársins 2023 hafi þessi söluhagnaður komið til álagningar hjá Skattinum. Þar sem til þessa hafi verið stofnað áður en kærandi hafi byrjað töku ellilífeyris sé fráleitt að Tryggingastofnun ríkisins horfi á þetta sem tekjur til lækkunar ellilífeyris árið 2023.

III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2023.

Í 30. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé vísað til laga um tekjuskatt nr. 90/2003, varðandi hvað skuli teljast til tekna við útreikning lífeyris. Til tekna teljist tekjur skv. II. kafla laga um tekjuskatt nr. 90/2003, að teknu tilliti til ákvæða sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða skv. 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 1. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 47. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 34. gr. laga um almannatryggingar. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2023 hafi kærandi verið með ellilífeyri allt árið. Kæranda hafi verið tilkynnt um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2023 með bréfi, dags. 28. maí 2024. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 299.269 kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu og áður myndaðrar kröfu.

Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé að endanlegar tekjur kæranda á árinu 2023 hafi reynst hærri en tekjuáætlanir kæranda á árinu hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi fengið senda tillögu að tekjuáætlun fyrir árið 2023 þann 13. desember 2022 ásamt bréfi þar sem komi fram að tillagan hafi sýnt væntanlegar tekjur kæranda árið 2023 og að kærandi þyrfti að fara yfir tillöguna og leiðrétta hana ef hann teldi hana ekki endurspegla væntanlegar tekjur ársins 2023 þar sem tekjuáætlunin væri á ábyrgð kæranda. Samkvæmt tillögunni hafi verið gert ráð fyrir að árið 2023 hefði kærandi 2.489.760 kr. í launatekjur og 1.525.608 kr. í lífeyrissjóðstekjur.

Kærandi hafi skilað inn nýrri tekjuáætlun þann 2. janúar 2023 þar sem fram hafi komið launatekjur að fjárhæð 900.000 kr. og lífeyrissjóðstekjur að fjárhæð 1.410.096 kr. Tryggingastofnun hafi sent kæranda bréf, dags. 12. janúar 2023, þar sem óskað hafi verið eftir staðfestingu á lækkun tekna á árinu. Kærandi hafi þá sent inn nýja tekjuáætlun, dags. 23. febrúar 2023, þar sem fram hafi komið launatekjur að fjárhæð 1.800.000 kr. og lífeyrissjóðstekjur að fjárhæð 1.560.000 kr. Tryggingastofnun hafi endurreiknað bótarétt kæranda og við þann endurreikning hafi myndast ofgreiðsla að fjárhæð 1.552 kr., sbr. greiðsluskjal, dags. 23. febrúar 2023.

Við bótauppgjör ársins 2023 hafi komið í ljós að á árinu 2023 hefði kærandi haft 2.210.000 kr. í launatekjur, 1.622.249 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 450.000 kr. úr séreignarsjóði og sameiginlegar fjármagnstekjur þeirra hjóna hafi verið 1.953.654 kr., annars vegar 853.654 kr. í vexti og verðbætur og hins vegar 1.100.000 kr. í söluhagnað.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd velferðarmála og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2023 hafi verið sú að kærandi hafi fengið greitt á árinu 2.868.022 kr. en hefði átt að fá greitt 2.431.452 kr. Þetta hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 299.269 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu og áður myndaðrar skuldar að fjárhæð 1.552 kr., sem hafi myndast vegna breytinga á árinu 2023.

Kærandi hafi þann 31. maí 2024 sent inn bréf frá Skattinum, dags. 22. maí 2024, sem andmæli við endurreikningnum en í því komi fram að kærandi hefði á eyðublaði sem hafi fylgt skattframtali 2022, vegna tekna ársins 2021, farið fram á frestun söluhagnaðar að fjárhæð 1.100.000 kr. af seldu íbúðarhúsnæði um tvenn áramót og þar sem kærandi hefði ekki fjárfest í nýju húsnæði þá kæmi umrædd frestun söluhagnaðar til skattlagningar á skattframtali ársins 2024, vegna tekjuársins 2023.

Kæranda hafi verið svarað með bréfi, dags. 20. júní 2024, þar sem fram hafi komið að endurreikningur stæði óbreyttur þar sem Tryggingastofnun væri óheimilt að líta fram hjá þeim tekjum sem birtist á skattframtali.

Kærandi segi í kæru sinni að þær tekjur sem Tryggingastofnun noti til frádráttar séu tekjur frá árinu 2021 en hann hefði frestað skattlagningu þeirra um tvö ár. Kærandi hafi hafið töku ellilífeyris í mars 2022 og því sé fráleitt að Tryggingastofnun horfi á þetta sem tekjur til lækkunar á ellilífeyri árið 2023.

 

Umræddar tekjur birtist á skattframtali kæranda 2024 vegna tekjuársins 2023. Eins og komið hafi fram sé Tryggingastofnun ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega.

Með vísan til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2023. Stofnunin telji að miðað við fyrirliggjandi gögn sé ljóst að afgreiðsla málsins hafi að fullu og öllu verið í samræmi við lög, reglur og góða stjórnsýsluhætti.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2023.

Kærandi fékk greiddan ellilífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun á árinu 2023. Samkvæmt 47. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til þess að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 22. gr. og 33. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 1. mgr. 22. gr. segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Á grundvelli 33. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 34. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Samkvæmt tekjuáætlun, dags. 13. desember 2022, gerði Tryggingastofnun ráð fyrir að á árinu 2023 fengi kærandi 2.489.760 kr. í launatekjur og 1.525.608 kr. í lífeyrissjóðstekjur. Kærandi skilaði inn nýrri tekjuáætlun þann 2. janúar 2023 þar sem fram komu launatekjur að fjárhæð 900.000 kr. og lífeyrissjóðstekjur að fjárhæð 1.410.096 kr. Með bréfi, dags. 12. janúar 2023, óskaði Tryggingastofnun eftir staðfestingu á lækkun tekna á árinu. Kærandi sendi inn nýja tekjuáætlun, dags. 23. febrúar 2023, þar sem gert var ráð fyrir launatekjum að fjárhæð 1.800.000 kr. og lífeyrissjóðstekjum að fjárhæð 1.560.000 kr. Bótaréttindi kæranda voru reiknuð á ný út frá þessum tekjuforsendum og við þann endurreikning myndaðist ofgreiðsla að fjárhæð 1.552 kr., sbr. greiðsluskjal, dags. 23. febrúar 2023.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2023 reyndust tekjur kæranda á árinu vera 2.210.000 kr. í launatekjur, 1.622.249 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 450.000 kr. í séreignarsjóð, 13.852 í aðrar tekjur og 1.953.654 kr. í fjármagnstekjur sameiginlegar með maka. Niðurstaða endurreiknings Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins 2023 leiddi í ljós 299.269 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi hefur verið krafinn um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar.

Samkvæmt framangreindu reyndust launa-, lífeyrissjóðs- og fjármagnstekjur kæranda vera hærri á árinu 2023 en gert hafði verið ráð fyrir. Framangreindir tekjustofnar hafa áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 22. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar og C-lið 7. gr. laga um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Ágreiningur málsins varðar þann tekjulið í skattframtali þar sem fram koma upplýsingar um söluhagnað. Samkvæmt gögnum málsins seldi eiginmaður kæranda húsnæði á árinu 2021 og fór fram á frestun söluhagnaðar að fjárhæð 1.100.000 kr. af seldu íbúðarhúsnæði um tvenn áramót í samræmi við ákvæði 2. mgr. 17. gr. laga um tekjuskatt. Því kom umrædd frestun söluhagnaðar til skattlagningar á árinu 2024 vegna tekjuársins 2023.

Eins og áður hefur komið fram eru fjármagnstekjur tekjustofn sem skerðir tekjutengdar bætur. Það á einnig við um söluhagnað, sbr. 8. tölul. C-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Þá skiptast fjármagnstekjur til helminga milli hjóna við útreikning lífeyris, sbr. 5. gr. 22. gr. laga um almannatryggingar. Úrskurðarnefndin horfir til þess að tekjur eiginmanns kæranda vegna söluhagnaðar frá árinu 2021 voru færðar á skattframtal hans vegna tekjuársins 2023. Tryggingastofnun er ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtast á skattframtali, enda kveður 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar skýrt á um að eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli stofnunin endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna samkvæmt þessari grein. Að þessu virtu fellst úrskurðarnefnd velferðarmála ekki á kröfu kæranda um að tekjur vegna söluhagnaðar skerði ekki tekjutengd bótaréttindi frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2023.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2023.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, vegna ársins 2023, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta