Hoppa yfir valmynd
22. ágúst 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 250/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 250/2024

Fimmtudaginn 22. ágúst 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 30. maí 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. maí 2024, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 27. desember 2022 og var umsóknin samþykkt 6. janúar 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. maí 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði hafnað starfi hjá B. Kærandi sendi Vinnumálastofnun frekari skýringar 27. maí 2024 og var mál hennar því tekið fyrir að nýju. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. maí 2024, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn í málinu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. maí 2024. Með bréfi, dags. 4. júní 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 28. júní 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. júlí 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa verið boðuð í atvinnuviðtal hjá B. Sá vinnutími sem hafi verið í boði hafi verið á tíma sem kærandi hefði tilgreint að hún gæti ekki unnið á sökum þess að tveggja ára gamall sonur hennar hefði hvorki leikskólavist né barnapíu til að annast hann. Þá hafi eiginmaður kæranda ekki komist frá vinnu sinni til að vera með barninu þegar umrætt atvinnuviðtal hafi átt að fara fram. Kærandi hafi verið í samskiptum við fulltrúa hjá B og reynt að finna nýjan tíma fyrir viðtalið en án árangurs.

Vinnumálastofnun hafi síðar krafið kæranda um útskýringu á „Mínum síðum“ en kærandi hafi ekki getað opnað þau skilaboð vegna einhvers konar villu á vefsíðunni. Kærandi hafi þar að auki ekki fengið áminningu frá B um að finna nýjan tíma fyrir umrætt viðtal. Kærandi telji það sennilega vera vegna þess að hún hafi ekki getað unnið á þeim vinnutíma sem í boði var vegna umönnunar sonar síns.

Kærandi kveður ákvörðun Vinnumálastofnunar hafa valdið sér miklu uppnámi þar sem hún telji hana óréttláta. Kærandi sé meira en fús til að vinna á þeim tímum sem hún hafi tilgreint og hafi alltaf komið heiðarlega fram. Minniháttar misskilningur hafi átt sér stað á milli kæranda og B en kærandi telur það ekki rétt að henni sé refsað svo harkalega fyrir slíkan misskilning. Hún áfellist fyrirtækið þó ekki fyrir misskilninginn.

Kærandi hafi sótt íslenskunámskeið til að auðvelda henni að fá vinnu á tímum sem hún geti unnið á. Hún geti unnið í B á kvöldin eða um helgar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 27. desember 2022. Með erindi, dags. 6. janúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 15. apríl 2024 hafi Vinnumálastofnun borist tilkynning um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Um hafi verið að ræða starf við ræstingar. Kæranda hafi verið miðlað í umrætt starf þann 4. apríl 2024 af Vinnumálastofnun. Í skýringum atvinnurekanda komi fram að kærandi hafi sagt að hún kæmist ekki í viðtal því hún væri heima með barn og hund.

Með erindi, dags. 6. maí 2024, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skýringum á ástæðum þess að kærandi hefði hafnað starfi hjá fyrirtækinu. Vinnumálastofnun hafi ekki borist umbeðnar skýringar. Þann 21. maí 2024 hafi Vinnumálastofnun tilkynnt kæranda um tveggja mánaða niðurfellingu greiðslna sökum þess að hún hefði hafnað starfi hjá B. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Stofnuninni hafi borist skýringar kæranda þann 27. maí 2024. Í skýringum kæranda hafi komið fram að hún hefði ekki hafnað atvinnutilboði. Hún hefði rætt við atvinnurekanda um að hún kæmist ekki í viðtal þar sem hún hefði ekki pössun fyrir barn sitt. Þann 28. maí 2024 hafi Vinnumálastofnun tilkynnt kæranda að mál hennar hefði verið tekið fyrir að nýju og að fyrri ákvörðun hefði verið staðfest þar sem sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir leiti sér að nýju starfi. Með lögunum sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í tímabundnu atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að hinir tryggðu séu í virkri atvinnuleit þann tíma. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. liður 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá B og í kjölfarið verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæði 1. mgr. 57. gr. sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Í athugasemdum við 57. gr. í frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé tekið fram að ekki skipti máli hvort það starf sem atvinnuleitanda bjóðist sé fullt starf, hlutastarf eða vaktavinna, þar sem mikilvægt sé að hinn tryggði verði aftur virkur á vinnumarkaði. Þá sé áréttað að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem bjóðist. Ástæðan sé einkum sú að atvinnuviðtal sé venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þyki mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við því að hafna starfi.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg en í 4. mgr. segi orðrétt:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Í athugasemdum með 57. gr. í frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega ítrekað að það að hafa ekki barnapössun fyrir ung börn á dagvinnutíma teljist ekki réttlæta höfnun á starfi samkvæmt ákvæðinu.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt fyrir ástæðu höfnunar á umræddu starfi lúti einkum að því að hún hafi ekki talið sig hafa hafnað atvinnutilboði. Hún hafi tjáð atvinnurekanda að hún hefði ekki pössun fyrir barn sitt. Þá hafi hún jafnframt mætt í annað viðtal og sótt námskeið í íslensku. Það hafi því verið mikið að gera hjá henni og hún hafi því gleymt að svara tölvupósti frá B.

Í rökstuðningi kæranda með kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála komi fram að vinnutími sem hafi verið gefinn upp hafi verið á tíma sem hún geti ekki unnið þar sem ungt barn hennar sé ekki með leikskólavist né barnapíu. Þá hafi maki kæranda ekki komist frá sinni vinnu á þeim tíma sem atvinnuviðtalið hafi átt að fara fram. Í kjölfarið hafi kærandi skrifast á við B um að finna nýjan tíma fyrir viðtalið. Hún hafi ekki fengið neina áminningu um að finna nýjan tíma fyrir viðtalið. Þá taki hún fram að mögulega hafi orðið einhver misskilningur á milli þeirra. Hún sé meira en fús til að vinna á þeim tímum sem hún hafi gefið upp. Hún hafi verið að sækja íslenskunám til að hjálpa sér við að finna vinnu á tímum sem hún geti stundað og geti unnið í B um helgar eða kvöld.

Í tilkynningu atvinnurekanda hafi komið fram að kærandi hafi ekki komist í atvinnuviðtal þar sem hún væri heima með barn og hund.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að framangreindar skýringar kæranda geti ekki talist gildar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Eins og fyrr segi sé skortur á barnapössun á dagvinnutíma ekki gild skýring fyrir höfnun á starfi. Auk þess hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Þá felist meðal annars í virkri atvinnuleit samkvæmt 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að vera reiðbúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að framkoma kæranda í atvinnuviðtalinu hafi falið í sér höfnun á starfi í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar enda hafi viðbrögð kæranda ekki verið til þess fallin að hún yrði ráðin til starfa hjá fyrirtækinu.

Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað starfi hjá B og ekki haft þar að baki gildar ástæður, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Því hafi borið að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði, sbr. 1. mgr. 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Í athugasemdum við 57. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 kemur fram:

„Enn fremur þykir mikilvægt að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem býðst. Ástæðan er einkum sú að atvinnuviðtal er venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þykir það mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við því að hafna starfi. Verður að teljast óeðlilegt að hinn tryggði geti neitað því að fara í atvinnuviðtal án viðbragða frá kerfinu en þeir sem fóru í viðtalið og var boðið starfið þurfi að þola biðtíma eftir atvinnuleysisbótum taki þeir ekki starfinu.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda miðlað í starf hjá B 4. apríl 2024. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 15. apríl 2024 að kærandi hefði hafnað starfinu þar sem hún kæmist ekki í viðtal því hún væri heima með barn og hund. Kærandi hefur vísað til þess að tveggja ára gamall sonur hennar hafi hvorki leikskólavist né barnapíu til að annast hann.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er ekki réttlætanlegt að hafna starfi á dagvinnutíma vegna umönnunar barna. Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara, sbr. d. liður 1. mgr. ákvæðisins og að vera reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu, sbr. f. liður 1. mgr. ákvæðisins.

Í athugasemdum við ákvæði 14. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 segir meðal annars svo:

„Enn fremur þykir ástæða til að taka fram að umsækjandi teljist vera í virkri atvinnuleit þegar hann, frá því að umsókn um atvinnuleysisbætur barst, hefur bæði vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara. Að öðrum kosti verður ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. Felur þetta til dæmis í sér að gert er ráð fyrir að foreldrar í virkri atvinnuleit með ung börn hafi barnapössun en reynslan í núverandi kerfi er að ungt fólk ber oft fyrir sig að það geti hvorki mætt í atvinnuviðtöl né tekið þátt í vinnumarkaðsúrræðum þar sem það hefur ekki gæslu fyrir börn sín.“

Í 4. mgr. 14. gr. kemur fram að Vinnumálastofnun sé heimilt að veita undanþágu frá skilyrðum c-, e- og f-liða 1. mgr. þannig að hinn tryggði, sem vegna aldurs, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima óskar eftir hlutastarfi eða starfi innan tiltekins svæðis, geti talist vera í virkri atvinnuleit. Enn fremur sé heimilt að taka tillit til aðstæðna hins tryggða sem geti ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt mati sérfræðilæknis. Um þetta er tekið fram í athugasemdum með ákvæðinu að með umönnunarskyldu vegna ungra barna sé ekki átt við þau tilvik er hinir tryggðu beri fyrir sig að hafa ekki barnapössun fyrir ung börn á dagvinnutíma.

Með vísan til framangreinds er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. maí 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta