Hoppa yfir valmynd
9. september 2024 Matvælaráðuneytið

Opið er fyrir umsóknir í Afurð fyrir almenna jarðræktarstyrki og landgreiðslur fyrir árið 2024

Umsóknum skal skilað fyrir miðnætti, þriðjudaginn 1. október nk. Til að geta sent inn umsókn í Afurð þarf að liggja fyrir skýrsla um ræktun ársins 2024 í skýrsluhaldskerfinu Jörð.
Athygli er vakin á að þeir framleiðendur sem sóttu um jarðræktarstyrk vegna útiræktaðs grænmetis þurfa að sækja sérstaklega um almennan jarðræktarstyrk.

Jarðræktarstyrkir

Jarðræktarstyrkjum skal varið til nýræktar og endurræktunar á túnum, kornræktar og ræktunar annarra fóðurjurta. Uppskera er forsenda fyrir jarðræktarstyrk.

Styrkhæf ræktun er ræktun grass, korntegunda til dýrafóðurs og manneldis, ræktun olíujurta, þar með talin ræktun jurta til framleiðslu á lífdísil, enda sé hratið nýtt til fóðurs. Einnig ræktun grænfóðurs til beitar og uppskeru á ræktunarári. Beit búpenings telst ígildi uppskeru og því styrkhæf, einnig nýting kornhálms og annarra jurta til uppræktunar jarðvegs í útiræktun grænmetis.

Ræktun vetraryrkja sem sáð er um mitt sumar og endurræktun túna er tekin út á ræktunarári.

Landgreiðslur

Skilyrði fyrir landgreiðslum er uppskera til fóðuröflunar á ræktuðu landi sem umsækjanda er heimilt að nýta. Ef einungis hluti þess lands sem sótt er um styrk út á gefur uppskeru, skal skrá sérstaklega fjölda þeirra hektara.

Umsóknir berist á Afurð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta