Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2024 Heilbrigðisráðuneytið

Áform um afnám kostnaðarþátttöku sveitarfélaga við uppbyggingu hjúkrunarheimila

Framkvæmdir - myndStjórnarráðið

Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt áform heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu sem fellir brott skyldu sveitarfélaga til að greiða 15% stofnkostnaðar við uppbyggingu hjúkrunarheimila. Þetta er liður í því að hrinda í framkvæmd ákvörðun heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um að taka upp nýtt og skilvirkara fyrirkomulag við öflun húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili sem kynnt var í byrjun þessa árs.

Með fyrirhuguðum breytingum er gert ráð fyrir að ríkið sjái alfarið um öflun húsnæðis undir rekstur hjúkrunarheimila í gegnum leigusamninga við fasteignafélög og aðra sérhæfða aðila á grundvelli útboða. Samkvæmt gildandi fyrirkomulagi standa ríki og sveitarfélög saman að byggingu húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili. Ríkið greiðir að jafnaði 85% stofnkostnaðar á móti 15% framlagi sveitarfélags að lágmarki og leggur sveitarfélagið jafnframt til lóð og ber kostnað af nauðsynlegri gatnagerð. Undanfarin ár hafa orðið töluverðar tafir á framkvæmdum við byggingu nýrra hjúkrunarheimila. Markmiðið með nýju fyrirkomulagi er að liðka fyrir uppbyggingu og tryggja fullnægjandi viðhald á þeim eignum sem nýttar eru undir þessa mikilvægu almannaþjónustu.

Frestur til að skila umsögnum um framangreind áform er til 27. júlí næstkomandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum