Reglubundinni umræðu um Ísland lokið í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Föstudaginn 4. júní fór fram árleg umræða um stöðu og horfur í íslenskum efnahagsmálum í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), en sérfræðingar á hans vegum gera úttekt á efnahagslífi aðildarlanda á eins til tveggja ára fresti á grundvelli 4. greinar stofnsáttmála um sjóðinn (e. Article IV Consultation). Sendinefnd frá AGS átti fjarfundi með íslenskum stjórnvöldum og ýmsum hagaðilum í lok mars og byrjun apríl.
Nýjustu skýrslur um Ísland voru birtar í dag á vef sjóðsins, sjá hér fyrir neðan (ásamt öðru nýlegu efni).
Sjá einnig hér: IMF STAFF COUNTRY REPORTS
Frétt um heimsókn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í apríl 2021
Vefsíða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem fjallað er um Ísland