Stjórnarskrárákvæði um auðlindir og umhverfisvernd í samráðsgátt
Á fundi formanna stjórnmálaflokkanna sem sæti eiga á Alþingi fyrr í dag var ákveðið að afgreiða tvö frumvörp um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands til samráðs við almenning á samráðsgátt stjórnvalda. Annars vegar er um að ræða frumvarp um umhverfisvernd og hins vegar frumvarp um auðlindir í náttúru Íslands en vinna við þessi tvö frumvörp er komin á þann stað að rétt þykir að leita álits og athugasemda frá almenningi um efni þeirra.
Vakin er athygli á því að samráðsgátt stjórnvalda er einungis eitt af þeim verkfærum sem nýtt verða til samráðs við almenning í stjórnarskrárvinnunni en að auki mun fara fram skoðanakönnun og rökræðukönnun síðar á árinu 2019.
Frumvörpin verða til umsagnar í samráðsgáttinni til 30. júní nk.