Hoppa yfir valmynd
15. apríl 2024 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 392/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 15. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 392/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24030141

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 22. mars 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Eþíópíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. mars 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 13. mars 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir níu daga dvöl frá 14. til 22. apríl 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. mars 2024. Hinn 22. mars 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Kærandi lagði ekki fram  greinargerð vegna stjórnsýslukæru sinnar. Í kæru vísar kærandi til þess að tilgangur hinnar fyrirhugðu dvalar sé brúðkaupsferð og kveðst hann ekki skilja efni ákvörðunarinnar eftir að hafa varið verðmætum tíma, orku, og fjármunum í skipulagningu ferðarinnar og umsóknarferlið.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Eþíópíu þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 10, þ.e. að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að flugbókanir kæranda væru óraunhæfar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá Utanríkisráðuneytinu, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Kærandi er ríkisborgari Eþíópíu en með fastan dvalarstað í Bandaríkjunum. Fram kemur í gögnum málsins, sem reifað er í málaskrá Útlendingastofnunar, að kærandi ætli sér að fljúga 13. apríl 2024 frá Seattle til London, og þaðan til Madeira í Portúgal degi síðar, 14. apríl 2024. Hinn 17. apríl 2024 ætli kærandi sér síðan að fljúga frá Madeira til Lissabon, þaðan til Amsterdam, og þaðan til Íslands. Hinn 22. apríl ætli kærandi sér síðan að fljúga frá Íslandi til London og sama dag til Bandaríkjanna. Áætlaður lendingartími flugs kæranda frá Íslandi til Heathrow flugvallar í London er 22. apríl 2024, kl. 14:55 að staðartíma. Áætlaður brottfarartími flugs kæranda frá London til dvalarríkis er sama dag kl. 14:25, eða hálftíma áður. Eðli máls samkvæmt er ómögulegt fyrir kæranda að komast í umrætt flug til heimaríkis. Kærandi hefur ekki bætt úr umræddum annmarka á kærustigi, svo sem með því að leggja fram nýjar flugbókanir. Þegar af þeirri ástæðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að upplýsingar sem kærandi veitti um tilgang og skilyrði dvalar sinnar hafi verið óáreiðanlegar, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands, sbr. 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum