Mál nr. 38/2023 Úrskurður 30. mars 2023
Mál nr. 38/2023 Eiginnafn: Kim (kk.)
Hinn 30. mars 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 38/2023 en erindið barst nefndinni 17. mars.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Tólf einstaklingar bera nafnið Kim í þjóðskrá, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra, og er sá elsti fæddur árið 1971. Eiginnafnið Kim (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kims, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Kim (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.