Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 165/2011

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 13. nóvember 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 165/2011.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 24. nóvember 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 21. nóvember 2011 fjallað um höfnun hennar á atvinnuviðtali fyrir milligöngu stofnunarinnar. Vegna höfnunarinnar var bótaréttur kæranda felldur niður frá og með degi ákvörðunar þann 21. nóvember 2011 í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi mótteknu 28. nóvember 2011. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 3. júní 2011. Þann 27. október 2011 var ferilskrá kæranda send til B Þann 2. nóvember 2011 bárust þær upplýsingar til Vinnumálastofnunar að kærandi hefði verið boðuð í starfsviðtal hjá B við heimaþjónustu en hún hafi ekki verið reiðubúin að mæta í viðtal.

 

Með bréfi, dags. 3. nóvember 2011, óskaði Vinnumálastofnun eftir skriflegum skýringum kæranda á umræddu atvinnuviðtali. Kæranda var veittur sjö daga frestur til að koma að athugasemdum sínum. Þann 7. nóvember 2011 barst skýringarbréf frá kæranda þar sem hún gerði grein fyrir sínum sjónarmiðum. Segir meðal annars í bréfi kæranda að hún teldi sér ekki skylt að mæta í viðtal þar sem óskað hafi verið eftir svari við því hvort hún „vildi koma í viðtal eða ekki“. Þá tekur hún fram í bréfinu að starf í heimaþjónustu sé ekki heppilegt vegna þess líkamlega álags sem það myndi skapa og hafi hún ekki sýnt áhuga á störfum sem tengjast velferðarþjónustu. Enn fremur getur hún þess að hún hafi ekki bíl til umráða en tekið hafi verið fram að æskilegt væri að starfsmaður hefði bíl til umráða.

 

Mál kæranda var tekið fyrir á fundi úthlutunarnefndar Atvinnuleysistryggingasjóðs Vinnumálastofnunar 21. nóvember 2011. Með bréfi, dags. 24. nóvember 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda ákvörðun nefndarinnar um að fella niður greiðslur atvinnuleysistrygginga til hennar í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það var mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda á höfnun atvinnutilboðs gætu ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Í kæru, dags. 28. nóvember 2011, greinir kærandi frá því að hún hafi fengið tölvubréf, dags. 2. nóvember 2011, frá deildarstjóra öldrunarþjónustu félagssviðs B, þar sem hún hafi verið spurð að því hvort hún vildi mæta í viðtal vegna starfs í heimaþjónustu. Kærandi kveðst hafa hafnað viðtalinu og sent svar þess efnis. Kærandi greinir frá því að hún hafi sent skýringar í tölvubréfi til Vinnumálastofnunar, dags. 7. nóvember 2011, þar sem fram hafi komið að hún teldi starfið ekki heppilegt vegna líkamlegs álags. Hún sé haldin mikilli vöðvabólgu og bakverkjum. Þá séu hæfniskröfurnar meðal annars áhugi á velferðarþjónustu og að hafa bíl til umráða. Hún hafi ekki sýnt þessum störfum áhuga vegna þess líkamlega álags sem þeim fylgir né hafi hún haft bíl til umráða. Þá kveðst kærandi vera í stöðugri atvinnuleit og opin fyrir störfum í gegnum Vinnumálastofnun sem henti hennar getu, starfsreynslu og áhugasviði.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 12. mars 2012, segir að mál þetta varði 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar séu tilgreindar ástæður sem geti komið til greina sem gildar skýringar við höfnun á starfi. Í athugasemdum við 57. gr. komi fram að gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu. Enn fremur sé heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði er starf fjarri heimili hans sem gerir kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum. Ljóst sé að kærandi hafi hafnað atvinnuviðtali hjá B. Hafi kærandi meðal annars tekið fram að það væri vegna þess að hún hafi ekki talið sér skylt að mæta í viðtalið, hefði ekki áhuga á störfum í velferðarþjónustu og starf við heimaþjónustu væri ekki heppilegt vegna líkamlegs álags. Vinnumálastofnun greinir frá því að 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eigi jafnt við um þá sem hafna starfi og þá sem hafna því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst eða sinnir ekki atvinnuviðtali. Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslna atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið nánar á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Sé þar tekið fram að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Þegar atvinnuleitandi sé boðaður í starfsviðtal í þeim tilgangi að fá hann til starfa en hann reynist óreiðubúinn að ganga í þau störf líti Vinnumálastofnun svo á að hann eigi að sæta viðurlögum á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Í ljósi ofangreinds telur Vinnumálastofnun að kærandi hafi í umrætt sinn hafnað starfi í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Er það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga s.l.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 19. mars 2012, gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 2. apríl 2012. Engar athugasemdir bárust frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 27. mars 2012, var kærandi látinn vita um tafir á afgreiðslu málsins vegna gríðarlegs fjölda kærumála hjá úrskurðarnefndinni.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Í 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um það þegar starfi eða atvinnuviðtali er hafnað. Í 1. mgr. greinarinnar segir að sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama eigi við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali.

 

Í 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kemur eftirfarandi fram:

 

Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði vísvitandi leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.

 

Í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur meðal annars fram að gert sé ráð fyrir að þetta eigi við um þá sem hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttökudegi umsóknar um atvinnuleysisbætur en ekki er tekið fram hvort líkur séu á að hlutaðeigandi fái vinnu í sinni starfsgrein. Þá greinir að það þyki eðlilegt að þeir sem eru tryggðir fái fjögurra vikna svigrúm til að leita sér að því starfi er þeir helst kjósa að sinna. Sá tími var liðinn þegar kærandi hafnaði 2. nóvember 2011 að fara í umrætt starfsviðtal en kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 3. júní 2011 líkt og fyrr greinir. Þá segir að heimilt sé að taka tillit til skertrar vinnufærni atvinnuleitanda við mat á því hvort ástæður séu gildar. Sjaldan muni þó reyna á þessa undanþágu enda ekki gert ráð fyrir að atvinnuleitanda verði boðin störf sem hann sé ekki fær um að sinna.

 

Fyrir úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hefur kærandi borið að ástæðurnar fyrir höfnun hennar á starfinu hafi meðal annars verið þær að hún hafi verið spurð að því hvort hún vildi mæta í viðtal eða ekki vegna starfs í heimaþjónustu. Kærandi telur starfið ekki heppilegt vegna líkamlegs álags en hún sé haldin mikilli vöðvabólgu og bakverkjum. Þá séu hæfniskröfurnar meðal annars áhugi á velferðarþjónustu og að hafa bíl til umráða. Hún hafi ekki sýnt þessum störfum áhuga vegna þess líkamlega álags sem þeim fylgir og vegna þess að hún sé ekki með bíl til umráða. Þá kveðst kærandi vera í stöðugri atvinnuleit og opin fyrir störfum í gegnum Vinnumálastofnun sem henti hennar getu, starfsreynslu og áhugasviði.

 

Í 1. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kemur meðal annars fram að í umsókn um atvinnuleysisbætur skuli koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum. Ekki liggur fyrir að kærandi hafi gert grein fyrir skertri vinnufærni sinni í umsókn um atvinnuleysisbætur né hefur hún lagt fram nein gögn þess efnis.

 

Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða verður ekki fallist á að skýringar kæranda fyrir nefndinni réttlæti höfnun hennar á umræddu atvinnutilboði með vísan til 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 9. gr. sömu laga. Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar er því staðfest.


 

 

Úr­skurðar­orð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 21. nóvember 2011 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, for­maður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta