Nr. 583/2023 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Hinn 12. október 2023 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 583/2023
í stjórnsýslumáli nr. KNU23050182
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 31. maí 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Líbíu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa honum frá landinu.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnunni verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar aðallega með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en til vara með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til meðferðar á ný á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til meðferðar á ný á grundvelli 11. gr. stjórnsýslulaga.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 6. mars 2023 og kom í ljós við skoðun stjórnvalda að kærandi hefði fengið útgefna vegabréfsáritun til Möltu. Hinn 15. mars 2023 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Möltu, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá yfirvöldum á Möltu, dags. 2. maí 2023, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 28. mars 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 31. maí 2023 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst kærunefnd greinargerð kæranda 14. júní 2023 ásamt fylgigögnum. Hinn 30. júní 2023 afturkallaði Útlendingastofnun ákvörðun sína í máli kæranda samkvæmt 25. gr. stjórnsýslulaga og birti honum nýja ákvörðun þann sama dag. Þá bárust frekari gögn frá kæranda 23. og 30. júní og 28. og 29. ágúst 2023.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að maltnesk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Möltu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Möltu.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi þurft að flýja heimaríki vegna ofsókna. Kærandi hafi ákveðið að fara til Íslands til að geta verið nálægt systur sinni og börnum hennar. Kærandi eigi alsystur sem sé með dvalarleyfi hér á landi og hafi búið hér síðan 2019. Kærandi eigi náin og rík tengsl við hana en þau hafi alltaf haldið sambandi aðallega í gegnum síma og netið. Kærandi heimsæki systur sína nánast daglega og hjálpi henni með börnin. Systir kæranda hafi stutt hann fjárhagslega en hann hafi stutt hana fjárhagslega þegar þau hafi verið yngri, m.a. fyrir brúðkaup hennar. Kærandi greindi frá því að vera með vandamál í gallblöðru og hafa farið í aðgerð vegna þess en fái oft verki. Þá hafi kærandi lent í bílslysi í heimaríki og þurft að fara í aðgerðir í kjölfarið.
Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð Útlendingastofnunar. Kærandi gerir athugasemd við niðurstöðu og röksemdafærslu Útlendingastofnunar þegar komi að umfjöllun um sérstök tengsl hans. Kærandi telur að matið á sérstökum tengslum krefjist þess ekki að umönnunarsjónarmið eigi að koma til skoðunar. Kærandi telur að matið samræmist ekki athugasemdum sem hafi fylgt 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að sérstök tengsl eigi ekki að virka sem eins konar mannúðarundantekning. Þá fjallar kærandi um leiðbeiningarskjal Útlendingastofnunar um sérstök tengsl og hugtakið félagsleg tengsl sem þar komi fram. Umönnunarsjónarmið og hvort aðilar séu hvor öðrum háðir eigi ekki leiða til þess að kærandi sé endursendur til lands sem hann hafi engin tengsl við. Þó telur kærandi að umönnunarsjónarmið eigi við í málinu vegna heilsufars hans. Jafnframt hafi systir kæranda sent honum pening til heimaríkis til að hann geti fengið læknisþjónustu þar í landi. Kærandi telur að hann hafi sérstök tengsl í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá gerir kærandi athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar þegar komi að reglunni um bann við endursendingu (non-refoulement). Kærandi vísar til þess að fyrirliggjandi heimildir beri með sér að hann eigi á hættu að vera endursendur til heimaríkis þar sem hann eigi á hættu grimmilega meðferð sem fari í bága við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá telur kærandi að hin kærða ákvörðun brjóti í bága við 10. og 11. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi telur að hann verði endursendur til heimaríkis frá Möltu en á Útlendingastofnun hvíli skylda til að rannsaka hvort hann eigi á hættu grimmilega meðferð verði hann endursendur til heimaríkis.
Kærandi byggir aðallega á því að taka skuli umsókn hans til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til frumvarps er varð að lögum um útlendinga við túlkun á hugtakinu sérstök tengsl. Kærandi telur að skilyrðin um sérstök tengsl séu uppfyllt vegna tengsla hans við systur sína og börn hennar. Hafi kærandi lagt fram fjölskyldubók og skráningarvottorð til að sanna blóðtengsl þeirra. Þá vísar kærandi til framlagðra gagna sem hann hafi lagt fram um tengsl hans við systur sína. Kærandi hafi búið hjá systur sinni strax eftir komuna til landsins en í dag eyði hann mestum tíma heima hjá henni. Þá hafi systir hans stutt hann fjárhagslega vegna heilsufarskvilla. Þá vísar kærandi til ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli nr. 2022-05978 og úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 550/2019 frá 21. nóvember 2019. Kærandi telur að tengsl hans við Ísland séu mun nánari en við Möltu. Þá byggir kærandi á því að taka skuli mál hans til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna. Kærandi vísar til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, en þar komi fram almenn viðmið sem taka skuli tillit til við mat á því hvort taka megi umsókn til efnismeðferðar. Kærandi telur þær aðstæður sem hann hafi upplifað og muni standa frammi fyrir verði hann endursendur til Möltu falli að öllu leyti undir þau skilyrði sem sett séu fram í reglugerðinni og krefst þess að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar. Kærandi vísar til þess að hann sé með vandamál í gallblöðru og hafi farið í aðgerð vegna þess. Þá glími kærandi við verki í kjölfar þess. Jafnframt hafi botnlangi kæranda verið fjarlægður í heimaríki. Kærandi glími við ýmsa heilsufarskvilla vegna framangreinds sem hafi farið versnandi. Þá hafi kærandi lent í alvarlegu bílslysi sem hafi áhrif á daglegt líf hans og líkamlega heilsu. Kærandi hafi ekki farið í fyrstu læknisskoðun hér á landi áður en ákvörðun Útlendingastofnunar hafi verið tekin og því hafi stofnunin ekki getað tekið upplýsta ákvörðun um það hvort 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi við í málinu. Þá vísar kærandi til alþjóðlegra skýrslna hvað varðar hindranir á Möltu við að nálgast grunnþjónustu, þ. á m. heilbrigðisþjónustu. Kærandi telur að hann muni ekki hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á Möltu verði hann sendur þangað. Vísar kærandi til 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga sem og 6. tölul. 3. gr. sömu laga. Kærandi telur að mat á heilsufari hans þurfi að fara fram áður en ákvörðun sé tekin. Kærandi telur þá að hann muni eiga erfitt uppdráttar á Möltu vegna alvarlegrar mismununar og að hann geti vænst þess að staða hans verði verulega síðri en almennings þar í landi, m.a. vegna takmarkaðs aðgangs að húsnæði, félagslegri aðstoð, framfærslu, heilbrigðisþjónustu, o.fl. Þá sé hætta á að kærandi verði fyrir fordómum, mismunun og hatursglæpum þar í landi vegna stöðu sinnar og þjóðernis. Vísar kærandi til alþjóðlegra skýrslna sem styðji framangreint. Kærandi telur að staða hans verði verulega síðri en staða almennings á Möltu og uppfylli því skilyrði 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá vísar kærandi til þess að mikill munur sé á stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd og þeirra sem fái réttarstöðu flóttamanns eða viðbótarvernd. Telur kærandi að það hvíli skylda á kærunefnd að rannsaka það nánar og útlista hvaða áhrif það hefði á stöðu kæranda á Möltu ef hann fengi aðeins viðbótarvernd, þá sérstaklega hvort slíkur munur geti talist alvarleg mismunun samkvæmt 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.
Þá gerir kærandi þá kröfu að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar með vísan til grundvallarreglunnar um bann við endursendingu (non-refoulement), sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 42. gr. laganna. Kærandi telur að fyrirliggjandi heimildir beri með sér að hann eigi á hættu að verða settur í varðhald við komuna til Möltu og muni verða fyrir grimmilegri meðferð sem fari í bága við 3. gr. mannréttindasáttmálans. Vísar kærandi til alþjóðlegrar skýrslu máli sínu til stuðnings. Þá vísar kærandi til þess að fyrirliggjandi heimildir beri með sér að hann eigi á hættu að verða endursendur til heimaríkis þar sem hann eigi á hættu grimmilega meðferð sem fari í bága við 3. gr. mannréttindasáttmálans og 42. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að rökstuddar ástæður liggi fyrir mögulegri hættu á meðferð sem brjóti í bága við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og því þurfi íslensk stjórnvöld að fá staðfestingu frá stjórnvöldum á Möltu hvort fullnægjandi aðstæður séu til staðar fyrir kæranda þegar komi að aðgangi að grunnþjónustu og að kærandi verði ekki endursendur til heimaríkis. Vísar kærandi til ákvæða 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Til þrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til meðferðar á ný, með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað nægileg vel meðferð stjórnvalda á Möltu þegar komi að ríkisborgurum frá Líbíu. Kærandi telur að hann verði endursendur til heimaríkis og því hvíli skylda á Útlendingastofnun að rannsaka hvort kærandi eigi á hættu grimmilega meðferð þar í landi.
Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til meðferðar á ný með vísan til 11. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi telur að eldri ákvarðanir Útlendingastofnunar beri ekki með sér að umönnunarsjónarmið, aldur aðila og hvort aðilar séu hvor öðrum háðir hafi haft eins mikið vægi og í ákvörðun í máli kæranda. Í eldri ákvörðunum hafi stofnunin veitt umsækjendum um alþjóðlega vernd sem hafi átt systkini hér á landi efnismeðferð á grundvelli sérstakra tengsla en umönnunarsjónarmið hafi ekki verið uppi í þeim málum, báðir aðilar hafi verið fullorðnir og fullfrískir einstaklingar og aðilar hafi ekki verið hvor öðrum háðir. Kærandi vísar til ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli nr. 2022-05978 og úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 550/2019 og telur málin vera sambærileg.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Aðstæður kæranda
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]. Kærandi fékk útgefna vegabréfsáritun til Möltu með gildistíma frá 20. janúar til 5. mars 2023. Kærandi kvaðst aðeins hafa verið þrjá eða fjóra daga á Möltu áður en hann kom hingað til lands og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 6. mars 2023. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að eiga systur hér á landi sem væri með dvalarleyfi en samband hans við systur sína væri náið. Kærandi kvaðst ekki þekkja til flóttamannakerfisins fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd á Möltu. Kærandi greindi frá því að vera með vandamál í gallblöðru og að hann væri með magaverk. Kærandi taki inn verkjalyf og magasýrulyf. Kærandi gæti ekki borðað feitan mat vegna þessa. Þá hefði mágur kæranda keyrt á hann í heimaríki fyrir tveimur árum og hann þurft að fara í aðgerð í kjölfarið og leggjast inn á sjúkrahús. Kærandi greindi frá því að andleg heilsa hans væri góð. Þá hefði fjölskylda kærustu hans tengsl á Möltu svo þau gætu hugsanlega gert honum mein þar í landi.
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.
Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.
Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Möltu á umsókn kæranda er byggð á 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið útgefna vegabréfsáritun af hálfu maltneskra stjórnvalda. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja maltnesk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Aðstæður á Möltu
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd á Möltu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- 2022 – Country Reports on Human Rights Practices – Malta (United States Department of State, 20. mars 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Asylum Information Database, Country Report: Malta (European Council on Refugees and Exiles, apríl 2023);
- ECRI Report on Malta (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 15. maí 2018);
- Freedom in the World 2023 – Malta (Freedom House, mars 2023);
- National Report on Hate Speech and Hate Crime in Malta 2016 (E-More Project, nóvember 2016);
- Progress Report 2018: A Global Strategy to Support Governments to End the Detention of Asylum seekers & Refugees, 2014-2019 (UN High Commissioner for Refugees (UNCHR), febrúar 2019);
- Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report Universal Periodic Review: Malta (UN High Commissioner for Refugees (UNHCR), júlí 2018);
- Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) (https://e-justice.europa.eu);
- Upplýsingar af vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (http://www.unhcr.org.mt);
- Upplýsingar af vefsíðu IPCAN (e. Independent Police Complaints Authorities Network) (www.ipcan.org);
- Upplýsingar af vefsíðu lögreglunnar á Möltu (https://pulizija.gov.mt/en/Pages/Home.aspx);
- Upplýsingar af vefsíðu maltneskra yfirvalda (https://deputyprimeminister.gov.mt/en/Pages/health.aspx) og
- Upplýsingar af vefsíðum Report Racism Malta og Reporting Hate: (www.reportracism-malta.org) og (reportinghate.eu).
Malta er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Malta verið aðili að Evrópuráðinu frá 29. apríl 1965 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1967. Malta fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð og um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi 13. september 1990 og barnasáttmálann 30. september 1990. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 17. júní 1971.
Í skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá 2023 kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem séu sendir til Möltu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti lagt fram umsókn hjá útlendingayfirvöldum þar í landi (e. International Protection Agency, IPA), sem taki ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd á Möltu. Fram kemur að umsækjendur séu boðnir til viðtals þar sem þeir eigi rétt á aðstoð túlks. Fram kemur í skýrslu ECRE að umsækjendur um alþjóðlega vernd geti kært ákvarðanir útlendingayfirvalda innan tveggja vikna til kærunefndar útlendingamála (e. International Protection Appeals Tribunal, IPAT). Úrskurður kærunefndar sé endanleg niðurstaða í máli umsækjanda um alþjóðlega vernd en hægt sé að bera hana undir maltneska dómstóla.
Samkvæmt skýrslu ECRE heyri þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd undir velferðarstofnun (e. Agency for the welfare of Asylum-Seekers, AWAS). Stofnunin beri ábyrgð á búsetuúrræðum og félagslegri aðstoð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samkvæmt fyrrgreindri skýrslu sé takmarkað aðgengi að búsetuúrræðum vegna fjölgunar umsækjenda en fjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu hafi forgang að úrræðunum. Sérstakar móttökumiðstöðvar séu starfræktar til að hýsa fjölskyldur, einstæðar konur og viðkvæma einstaklinga. Fjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu fái að dvelja í úrræði á vegum AWAS í eitt ár en að því liðnu geti þeir leitað til félagsþjónustu á Möltu. Þá geti einstæðir karlmenn dvalið í úrræðum AWAS í sex mánuði sem hægt sé að framlengja ef umsækjandi sé í viðkvæmri stöðu. Umsækjendur sem dvelji í opnum rýmum í móttökumiðstöðvum eigi rétt á dagpeningum, aðgengi að heilbrigðisþjónustu og aðgengi að menntun til sextán ára aldurs. Samkvæmt skýrslu ECRE eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á að stunda atvinnu á Möltu og eigi börn umsækjenda rétt á menntun til 16 ára aldurs. Þá kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Mat á viðkvæmri stöðu fari fram hjá AWAS og sé m.a. tekið mið af því hvort umsækjandi hafi verið alvarlega veikur, eigi við andleg vandamál að stríða eða glími við fötlun og fari stuðningur við umsækjanda eftir stöðu hans og þörfum. Einstaklingar í viðkvæmri stöðu geti sem dæmi verið fylgdarlaus börn, þungaðar konur, einstæðir foreldrar með ung börn og þolendur ofbeldis.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að stjórnarskrá Möltu leggi bann við mismunun á grundvelli kynþáttar og kyns. Í framangreindri skýrslu European Commission against Racism and Intolerance (ECRI) frá árinu 2018 kemur m.a. fram að flóttamenn og innflytjendur sæti mismunun á Möltu, þ. á m. á vinnumarkaði, en að maltnesk yfirvöld framfylgi aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju og útlendingahatri (e. National Action Plan Against Racism and Xenophobia), sem gefin hafi verið út árið 2010. Telji einstaklingar á sér brotið geti þeir m.a. leitað til nefndar um opinbera þjónustu (e. Public Service Commission), jafnréttisnefndar (e. National Commission for the Promotion of Equality), umboðsmanns þingsins (e. Parliamentary ombudsman) og dómstóla. Ekki liggi fyrir sundurliðuð, opinber gögn um hatursglæpi á Möltu, s.s. um tíðni þeirra, kærufjölda, fjölda mála sem sæti ákæru o.s.frv. Hatursglæpir, þ. á m. á grundvelli kynþáttar, séu refsiverðir samkvæmt maltneskum hegningarlögum. Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRI skorti þó eftirfylgni með löggjöfinni, fá mál séu kærð og lágt hlutfall kærumála sæti ákæruferli.
Þolendur afbrota geti leitað til lögregluyfirvalda á Möltu en á heimasíðu lögreglunnar kemur fram að einstaklingar geti tilkynnt um brot til lögreglunnar á lögreglustöð eða í gegnum síma. Þá sé einnig hægt að tilkynna í gegnum rafrænt kerfi á vefsíðu lögreglunnar. Þá kemur fram að þolendur geti gengið út frá því að komið verði fram við þá af virðingu óháð menningu, kynþætti, kyni eða annarra þátta. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar á Möltu sem séu þolendur afbrota og tali hvorki né skilji maltnesku eða ensku geti lagt fram kæru til lögreglu á sínu móðurmáli og eigi rétt á nauðsynlegri aðstoð við það, s.s. túlkaþjónustu. Jafnframt geti þau leitað til samtakanna Victim Support og tilkynnt um hatursglæpi á þar til gerðum vefsíðum, www.reportracism-malta.org og reportinghate.eu. Þá kemur fram á framangreindri vefsíðu IPCAN að umboðsmaður maltneska þingsins fari með rannsókn á embættisverkum maltnesku lögreglunnar.
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mála annars með því.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.
Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.
Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.
Kærandi er karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera með vandamál í gallblöðru og hann væri með magaverk. Kærandi taki inn verkjalyf og magasýrulyf og geti ekki borðað feitan mat vegna þessa. Þá hafi mágur kæranda keyrt á hann í heimaríki fyrir tveimur árum og hann þurft að fara í aðgerð í kjölfarið og leggjast inn á sjúkrahús. Kærandi greindi frá því að andleg heilsa hans væri góð. Í samskiptaseðlum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 26. maí til 5. júní 2023, kemur m.a. fram að kærandi hafi greint frá verkjum undir hægra rifjabarði og aftur í bak hægra megin. Kærandi kasti upp eftir máltíðir um tvisvar í viku. Skoðun hafi leitt í ljós að kærandi væri aumur yfir miðju baki. Kærandi hafi greint frá því að hafa farið í aðgerð í heimaríki þar sem gallblaðran hafi verið fjarlægð árið 2021 auk þess sem hann hafi lent í bílslysi sama ár og farið í aðgerð í kjölfarið. Kærandi hafi greint frá því að magasýrulyf hafi hjálpað. Þá hafi kærandi verið að léttast. Skoðun hafi leitt í ljós útbrot á maga og brjóstkassa sem hafi byrjað fyrir ári að sögn kæranda. Hugsanlega væri um sveppasýkingu að ræða. Kærandi hafi fengið tíma hjá lækni. Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 20. júní 2023, kemur fram að kærandi hafi verið fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vegna yfirliðs, kviðverks og uppkasta. Þá hefur kærandi lagt fram heilsufarsgögn frá heimaríki sem bera með sér að hann hafi undirgengist aðgerð á gallblöðru og botnlanga.
Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 28. mars 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 31. maí 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd 23. júní 2023. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Kærunefnd telur ljóst að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður á Möltu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kæranda komi því til með að standa til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta þar í landi. Kærunefnd áréttar það sem kemur fram í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, þ.e. að meðferð við veikindum teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Kærandi hefur borið fyrir sig að hann óttist að vera endursendur frá Möltu til heimaríkis. Þá hefur kærandi greint frá því að fjölskylda kærustu hans hefði tengsl á Möltu svo þau gætu hugsanlega gert honum mein þar í landi. Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá áréttar kærunefnd að gögn málsins bera með sér að kærandi hafi ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í viðtökuríki og því hafi hann ekki reynslu af móttökukerfinu þar í landi. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að í viðtökuríkinu sé löggæslan virk og telji kærandi sér mismunað eða óttist hann öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað sér aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum. Þá er ekkert sem bendir til þess að löggæsluyfirvöld á Möltu muni ekki veita kæranda viðeigandi vernd. Þá bera gögn málsins með sér að maltnesk yfirvöld hafi veitt kæranda vegabréfsáritun og að hann hafi komist óhindrað til Möltu.
Kærandi telur að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd áréttar að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.
Við meðferð málsins lagði kærandi fram bréf um handtökuskipun frá heimaríki. Þá hefur kærandi lagt fram bréf frá systur sinni þar sem fram kemur að fjölskylda þeirra í heimaríki hafi greint þeim frá að hús þeirra hafi orðið fyrir árás frá uppreisnarher. Kærunefnd tekur fram að umrædd gögn hafi takmarkaða þýðingu við mat nefndarinnar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Möltu en ítrekar að hann getur lagt þau fram við meðferð umsóknar hans þar í landi.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að nafngreind systir hans og börn hennar væru búsett hér á landi í lögmætri dvöl. Kærandi og systir hans væru náin og hafi hann m.a. stutt hana fjárhagslega í heimaríki. Þá hefði systir kæranda stutt hann fjárhagslega eftir komuna til Íslands. Kærandi hefur lagt fram ýmis gögn máli sínu til stuðnings, m.a. skráningarvottorð frá heimaríki, fjölskyldubók, ljósmyndir, skjáskot af samskiptum þeirra á milli í gegnum samfélagsmiðla og ljósmynd af kvittunum vegna fjárhagsstuðnings systur kæranda.
Lög um útlendinga veita ekki skýrar leiðbeiningar um hvernig hugtakið sérstök tengsl skv. 2. mgr. 36. gr. skuli túlkað. Í athugasemdum sem fylgdu ákvæðinu í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga kemur fram að ákvæðinu sé ætlað að taka m.a. til þeirra tilvika þegar umsækjendur eiga ættingja hér á landi en ekki í því ríki sem þeir yrðu aftur sendir til. Þetta geti einnig átt við í öðrum tilfellum þar sem tengsl eru ríkari en við viðtökuríkið, svo sem vegna fyrri dvalar. Í athugasemdunum kemur jafnframt fram að með ákvæðinu sé stjórnvöldum eftirlátið mat og hafi heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiðir af sérstökum reglum, svo sem reglum Dyflinnarreglugerðarinnar. Af því má m.a. leiða að þau tengsl sem ákvæðið vísar til geta verið fjarlægari en þau nánu fjölskyldutengsl sem Dyflinnarreglugerðin mælir fyrir um, sbr. m.a. g-lið 2. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.
Í 4. mgr. 32. gr. b reglugerðar um útlendinga stendur að umsækjandi teljist ekki hafa sérstök tengsl við Ísland nema aðstandandi hans sé búsettur hér á landi í lögmætri dvöl. Við mat á sérstökum tengslum skal m.a. líta til þess hvort umönnunarsjónarmið séu fyrir hendi, hvort umsækjandi og aðstandandi hans hafi deilt eða alist upp á sama heimili eða hafi á einhverjum tímapunkti haft uppeldisskyldu eða framfærsluskyldu sín á milli. Stjórnvöldum er heimilt að krefja umsækjanda um að sýna fram á umrædd tengsl, t.d. með framlagningu skilríkja eða vottorða. Þá er stjórnvöldum heimilt að óska eftir því að aðstandandi umsækjanda staðfesti umrædd tengsl. Þá segir í 5. mgr. ákvæðisins að við mat á sérstökum tengslum ber þó ávallt að hafa til hliðsjónar þau tengsl sem viðkomandi hefur í því ríki þar sem hann hefur heimild til dvalar í, m.a. lengd dvalar í ríkinu, fjölskyldutengsl og samfélagsleg tengsl sem umsækjandi hefur myndað við ríkið. Þá skal jafnframt hafa til hliðsjónar hvort viðkomandi eigi rétt á fjölskyldusameiningu skv. VIII. kafla laga um útlendinga.
Samkvæmt framansögðu verður að leggja til grundvallar að eigi umsækjandi um alþjóðlega vernd sannanlega ættingja hér á landi sem hafa heimild til dvalar hér og umsækjandi hefur raunveruleg og sérstök tengsl við hér á landi en ekki í viðtökuríki, geti umsókn hans verið tekin til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra tengsla hans við landið. Kærunefnd telur að við mat á sérstökum tengslum í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sé stjórnvöldum heimilt að líta til 17. tölul. 3. gr. laga um útlendinga en hafa verður í huga að hugtakið er annað og þrengra en hugtakið ættingi sem fram kemur í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga. Þannig geta önnur fjölskyldutengsl fallið undir 2. mgr. 36. gr., en gera verður ríkari kröfur til þess að sýnt sé fram á að þau tengsl séu sérstök og rík. Umræddir ættingjar kæranda teljast ekki til nánustu aðstandenda hans samkvæmt orðalagi 17. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.
Þegar málið er metið heildstætt er það mat nefndarinnar að leggja verði til grundvallar að kærandi eigi ættingja hér á landi í lögmætri dvöl. Á hinn bóginn hafa þau gögn sem kærandi hefur lagt fram, þ. á m. gögn frá heimaríki og ljósmyndir, ekki sýnt fram á að umönnunarsjónarmið séu fyrir hendi. Þrátt fyrir að framlögð gögn beri með sér að kærandi hafi móttekið greiðslur frá systur sinni fyrir flóttann frá heimaríki verður ekki talið að þau hafi framfærslu- eða uppeldisskyldu sín á milli í skilningi 4. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af heildarmati á aðstæðum kæranda og fyrirliggjandi gögnum málsins er það því niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli nr. 550/2019 frá 21. nóvember 2019, þar sem fallist hafi verið á sérstök tengsl kæranda við föðurbróður sinn. Þá vísar kærandi til 11. gr. stjórnsýslulaga. Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda í þessu máli og kæranda í framangreindu máli ólíkar og ekki hægt að jafna þeim saman. Í framangreindum úrskurði leit kærunefnd m.a. til stöðu kæranda og þess að föðurbróðir kæranda hafi gegnt ákveðnu umönnunarhlutverki í lífi hans. Þá vísar kærunefnd til þess að framangreindur úrskurður var kveðinn upp fyrir setningu 4. og 5. mgr. 32. gr. b reglugerðar um útlendinga. Vegna tilvísunar kæranda til ákvörðunar Útlendingastofnunar nr. 2022-05978 tekur kærunefnd fram að nefndin er ekki bundin af ákvörðunum Útlendingastofnunar. Er því þrautaþrautavarakröfu kæranda hafnað.
Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 6. mars 2023.
Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.
Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.
Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.
Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/10, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.
Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.
Eins og ráða má af framangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.
Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.
Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Af þeim sökum fellst kærunefnd ekki á þrautavarakröfu kæranda um að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til meðferðar á ný, með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði á Möltu, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd á Möltu og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun og reglur stjórnsýsluréttar
Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við það að hann hafi ekki farið í fyrstu læknisskoðun hér á landi áður en ákvörðun Útlendingastofnunar hafi verið tekin og því hafi stofnunin ekki getað tekið upplýsta ákvörðun um það hvort 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi við í málinu.
Af gögnum málsins má sjá að sérfróðir starfsmenn Útlendingastofnunar hafi lagt mat á málsástæður og einstaklingsbundnar aðstæður kæranda. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 28. mars 2023. Aðspurður kvaðst kærandi m.a. vera með með vandamál í gallblöðru og magaverk. Kærandi taki inn verkjalyf og magasýrulyf. Þá hefði mágur kæranda keyrt á hann í heimaríki fyrir tveimur árum og hann þurft að fara í aðgerð í kjölfarið og leggjast inn á sjúkrahús. Kærandi greindi frá því að andleg heilsa hans væri góð. Af endurriti viðtals við kæranda má sjá að fulltrúi Útlendingastofnunar hafi spurt út í andlegt og líkamlegt heilsufar hans, s.s. hvort hann hafi leitað til læknis í viðtökuríki, hvernig honum hafi liðið undanfarið og hvaða áhrif þeir atburðir sem hann hafi orðið fyrir hafi haft á líf hans. Þá var kæranda leiðbeint um að leggja fram frekari gögn í tengslum við heilsufar sitt. Af ákvörðun Útlendingastofnunar má sjá að mat hafi verið lagt á aðgang handhafa alþjóðlegrar verndar að viðeigandi heilbrigðisþjónustu á Möltu með hliðsjón af þeim heilsufarsvandamálum sem kærandi kvaðst glíma við. Með tilliti til heildarmats í máli kæranda telur kærunefnd ljóst að ítarlegri rannsókn á heilsufari hans og framlagning frekari gagna hefði ekki getað haft áhrif á niðurstöðu í máli hans enda er ekkert sem bendir til þess að hann glími við mikil og alvarleg veikindi, sbr. viðmið í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 31. maí 2023, var kæranda einnig leiðbeint um að leggja fram frekari heilsufarsgögn í málinu. Frekari heilsufarsgögn frá Göngudeild sóttvarna bárust kærunefnd 23. júní 2023 sem staðfesta framangreinda frásögn kæranda af heilsufarsvandamálum sínum.
Þá vísar kærandi til þess í greinargerð sinni að mikill munur sé á stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd og þeirra sem fái réttarstöðu flóttamanns eða viðbótarvernd. Telur kærandi að það hvíli skylda á kærunefnd að rannsaka það nánar og útlista hvaða áhrif það hefði á stöðu kæranda á Möltu ef hann fengi aðeins viðbótarvernd, þá sérstaklega hvort slíkur munur geti talist alvarleg mismunun samkvæmt 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.
Kærunefnd tekur fram að mál þetta varðar hvort taka beri mál kæranda til efnismeðferðar. Stjórnvöld á Möltu hafa fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í slíkum málum skoða íslensk stjórnvöld m.a. hvort umsókn kæranda í viðtökuríki muni hljóta viðunandi málsmeðferð og leggja mat á hvort hætta sé á að hann verði fyrir meðferð sem brjóti í bága við 3. gr. mannréttindasáttmálans. Líkt og að framan greinir er Malta Evrópusambandsríki og er sem slíkt bundið af samevrópskum reglum um aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd og reglna um veitingu alþjóðlegrar verndar. Kærunefnd telur ekkert fram komið í málinu sem bendi til annars en að mál kæranda hljóti viðunandi meðferð í viðtökuríki, sbr. það sem að framan er rakið. Þá áréttar kærunefnd að kærandi hafi ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í viðtökuríki.
Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.
Frávísun
Kærandi kom hingað til lands 14. febrúar 2023 og sótti um alþjóðlega vernd 6. mars 2023. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærandi skal fluttur til Möltu innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
Samantekt
Í máli þessu hafa maltnesk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Möltu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Bjarnveig Eiríksdóttir Sandra Hlíf Ocares