Mannanafnanefnd, úrskurður 17. desember 2010
Mál nr. 91/2010 Eiginnafn: Sefanía
Hinn 17. desember kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 91/2010 en erindið barst nefndinni 8. desember.
Eiginnafnið Sefanía (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Sefaníu og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Sefanía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.