Hoppa yfir valmynd
12. mars 2021 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19 Tafir á afhendingu bóluefnis frá AstraZeneca – bólusetningardagatal uppfært

Tafir verða á afhendingu bóluefnis frá AstraZeneca til allra landa í samstarfi Evrópuþjóða um kaup á bólefni. Áætlað hafði verið að afhenda Evrópuþjóðunum 150 milljónir skammta á öðrum ársfjórðungi en nú er ljóst að aðeins 70 milljónir skammta munu berast á því tímabili. Vegna þessa er gert ráð fyrir því að tímaáætlanir um bólusetningar færist aftur um um það bil fjórar vikur. Bólusetningardagatal heilbrigðisráðuneytisins tekur nú mið af þessum breytingum.

Nú hafa 33.255 einstaklingar verið bólusettir hér á landi. Áætlanir gerðu ráð fyrir um því að um 45.000 einstaklingar yrðu bólusettir hér á landi fyrir lok marsmánaðar. Í dag er gert ráð fyrir að 43.000 einstaklingar muni hafa þegið bólusetningu þá svo áætlanir um bólusetningar á fyrsta ársfjórðungi standast. Nýjustu afhendingaráætlanir gera ráð fyrir um 60.000 skömmtum frá Pfizer, Moderna og AstraZeneca í aprílmánuði sem munu nýtast um 30.000 manns.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta