Nærri þrjú þúsund manns á framboðslistum
Á þeim 185 listum sem boðnir eru fram til 76 sveitarstjórnum í kosningunum 29. maí eru alls 2.846 einstaklingar sem eru rúmlega 1,2% kjörgengnra manna í landinu. Þetta kemur meðal annars fram á vefnum kosning.is sem dómsmála- og mannréttindaráðuneytið stýrir.
Málefni sveitarstjórnarkosninga voru flutt til dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins á síðasta ári frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Á áðurnefndum vef koma fram helstu upplýsingar um kosningarnar, svo sem um lög og reglur, leiðbeiningar, fréttir og fleira.
Fleiri listar en einn hafa verið lagðir fram í 54 sveitarfélögum og því fara fram hlutfallskosningar þar. Í 18 sveitarfélögum fara fram óbundnar kosningar þar sem enginn listi kom fram og sjálfkjörið er í fjórum sveitarfélögum þar sem fram kom aðeins einn listi. Það eru Breiðdalshrepur, Djúpavogshreppur, Sveitarfélagið Skagaströnd og Tálknafjarðarhreppur.
- Sjá nánar á vefnum: kosning.is