Auðlesið efni
Á vefsíðu innanríkisráðuneytisins, kosning.is, er birt í fysta sinn auðlesið efni og má líta á það sem fyrsta skrefið í þá átt að þjóna þeim hópi sem á því þarf að halda. Frumkvæði að þessu átti Átak, félag fólks með þroskahömlun.
Fulltrúar félagins lögðu til drög að efni sem síðan var unnið úr í samvinnu við starfsmenn ráðuneytisins.
Það skref sem nú er stigið er í samræmi við sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem Ísland er aðili að, en þar er m.a. kveðið á um að tryggja eigi aðgengi fatlaðs fólks að hvers kyns upplýsingum og hugmyndum til jafns við aðra.