Hoppa yfir valmynd
16. september 2024 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 104/2024 Úrskurður 16. september 2024

Mál nr. 104/2024                  Eiginnafn: Dúrra (kvk.)

Hinn 16. september 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 104/2024 en erindið barst nefndinni 12. september.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Dúrra (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Dúrru, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dúrra (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta