Umsækjendur um embætti rektors MR, skólameistara Kvennó og MA
Mennta- og barnamálaráðuneytinu barst 21 umsókn um embætti rektors Menntaskólans í Reykjavík, skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík og skólameistara Menntaskólans á Akureyri. Umsóknarfrestur rann út í síðustu viku.
Umsækjendur um embætti rektors Menntaskólans í Reykjavík:
- Ágústa Elín Ingþórsdóttir, fv. skólameistari
- Einar Hreinsson, konrektor
- Grégory D. Ferdinand Cattaneo, sölu- og verkefnastjóri
- Kolfinna Jóhannesdóttir, sviðsstjóri
- Sólveig Guðrún Hannesdóttir, framhaldsskólakennari/fagstjóri
Einn dró umsókn sína til baka.
Umsækjendur um embætti skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík:
- Alma Oddgeirsdóttir, brautastjóri
- Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður
- Ágústa Elín Ingþórsdóttir, fv. skólameistari
- Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir, skólameistari
- Einar Hreinsson, konrektor
- Hulda B. Kjærnested Baldursdóttir, kennari
- Kolfinna Jóhannesdóttir, sviðsstjóri
- Þorkell Hjálmarsson Diego, yfirkennari
Umsækjendur um embætti skólameistara Menntaskólans á Akureyri:
- Alma Oddgeirsdóttir, brautastjóri
- Ásta Fönn Flosadóttir, skólastjóri
- Karl Frímannsson, sviðsstjóri
- Kristín Elva Viðarsdóttir, skólasálfræðingur
- Ómar Örn Magnússon, doktorsnemi
- Sigurlaug A. Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari
- Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri
Skipað verður í öll embættin frá 1. ágúst næstkomandi. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættin til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.