Breytt fyrirkomulag krabbameinsskimana frá 1. janúar 2021
Breytingar verða á skipulagi, stjórn og framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum um næstu áramót. Landspítali í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri tekur þá að sér framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum í brjóstum og heilsugæslan um allt land framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum í leghálsi. Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur annast þetta verkefni um áratuga skeið og unnið mikilvægt brautryðjandastarf í baráttunni við krabbamein hér á landi. Markmið breytinganna er að færa verklag nær því skipulagi sem mælt er með í alþjóðlegum skimunarleiðbeiningum til að tryggja enn frekar öryggi og gæði og er jafnframt í samræmi við framtíðarsýn og meginmarkmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Embætti landlæknis mun fara með stjórn hópleitarinnar og bera ábyrgð á henni, sinna gæðaeftirliti og halda skimunarskrá.
Landlæknir kynnti fyrir heilbrigðisráðherra í byrjun árs 2019 tillögur að framtíðarskipulagi krabbameinsskimana. Tillögurnar voru í samræmi við niðurstöður skimunarráðs og tillögur þess um að færa framkvæmd skimana inn í opinbera heilbrigðiskerfið. Heilbrigðisráðherra fól verkefnastjórn að útfæra tillögurnar og tók formlega ákvörðun um að hrinda breytingunum í framkvæmd 1. janúar 2021.
Áhersla verður lögð á að yfirfærsla verkefnisins frá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins til sjúkrahúsanna og heilsugæslunnar valdi sem minnstri röskun á þjónustu. Tímapantanir í skimun samkvæmt breyttu fyrirkomulagi hefjast í byrjun janúar.
Upplýsingar um framkvæmd skimana frá áramótum
Reglubundin skimun fyrir krabbameini í brjóstum og leghálsi er forvörn ætluð einkennalausum konum. Finni konur fyrir einkennum frá brjóstum eða kvenlíffærum er þeim ráðlagt að leita til læknis.
Samhæfingarstöð krabbameinsskimana
Sett hefur verið á fót Samhæfingarstöð krabbameinsskimana. Meðal verkefna hennar er að boða konur í reglubundna skimun og veita upplýsingar um niðurstöður skimana. Samhæfingarstöðin heyrir undir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en starfar á landsvísu.
Skimun fyrir krabbameini í brjóstum
- Tímapantanir: Frá 6. janúar 2021 geta konur pantað tíma í skimun hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana sem tekur við öllum tímapöntunum vegna þessarar þjónustu.
- Staðsetning þjónustu: Þjónustan verður áfram veitt í húsnæði Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð þar til á vormánuðum 2021 þegar hún flyst á Eiríksgötu 5. Við Sjúkrahúsið á Akureyri verður staðsetning þjónustunnar óbreytt.
- Nánari upplýsingar um tímapantanir o.fl. eru á vef samhæfingarmiðstöðvarinnar.
Skimun fyrir leghálskrabbameini – landsbyggðin
- Tímapantanir: Frá 4. janúar geta konur pantað tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini á www.heilsuvera.is eða hjá heilsugæslustöðinni sinni.
- Framkvæmdin: Fyrirkomulag skimana á landsbyggðinni verður óbreytt.
Skimun fyrir leghálskrabbameini – höfuðborgarsvæðið
- Tímapantanir: Frá 4. janúar geta konur pantað tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini á www.heilsuvera.is eða hjá heilsugæslustöðinni sinni.
- Staðsetning þjónustu: Þjónustan verður veitt á öllum heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Sem fyrr geta konur sem það kjósa leitað til kvensjúkdómalæknis vegna sýnatöku.
- Framkvæmd: Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar, sem hafa hlotið sérstaka þjálfun, munu annast sýnatöku, líkt og ljósmæður og hjúkrunarfræðingar hafa gert á heilsugæslustöðvunum á landsbyggðinni frá árinu 2015.