Hoppa yfir valmynd
26. nóvember 2020 Matvælaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður auglýsir eftir umsóknum

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði.

Sjóðurinn starfar í samræmi við þingsályktun nr. 40/149 um aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna, og nýtur framlaga frá heilbrigðisráðuneytinu og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu samtals 30 milljónir kr. á ári í þrjú ár, þ.e. til ársloka 2022. 

Tilgangur sjóðsins er að fjármagna verkefni undir formerkjum „Einnar heilsu“ (e. One Health) í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi.

  1. Auglýst er eftir umsóknum um styrki til grunnrannsókna í sýklalyfjaónæmi. 
    • Í styrkumsókn skal m.a. koma fram: Markmið verkefnis, fjárhæð sem sótt er um í sjóðinn, framkvæmda- og kostnaðaráætlun, áætlun um nýtingu fjármagns sem sótt er um, rannsóknarleyfi og hvernig nýta megi niðurstöður til að draga úr sýklalyfjaónæmi. Sótt skal um í nafni einstaklings, stofnunar eða starfseiningar.
    • Úthlutanir sjóðsins eru tvisvar á ári. Umsóknarfrestur rennur út 10. desember 2020.
       
  2. Auglýst er eftir umsóknum um styrki til þess að fjármagna tilteknar skimanir fyrir ónæmum sýklum.
    • Til nánari skýringa verða einungis fjármagnaðar skimanir sem eru umfram lögbundnar skimanir, t.d. tilteknar skimanir í matvælum, sauðfé, hrossum, gæludýrum, sníkjudýrum og umhverfi.
    • Í styrkumsókn skal m.a. koma fram skimunar- og kostnaðaráætlun og rökstuðningur fyrir mikilvægi verkefnisins.
    • Úthlutanir sjóðsins eru einu sinni á ári. Umsóknarfrestur rennur út 1. maí  2021.
       
  3. Auglýst er eftir umsóknum um styrki til þess að fjármagna umframkostnað vegna rannsókna í almannaþágu í því skyni að rekja uppruna sýkla sem dreifast á milli manna og dýra (súnur) í þeim tilvikum þegar upp koma hrinur, hópsýkingar eða faraldrar. 
    • Umsóknir geta borist sjóðnum allt árið um kring og verða umsóknir teknar til umfjöllunar á fundi sjóðsstjórnar í kjölfar þess að þær berast.
    • Í styrkumsókn skal m.a. koma fram lýsing á atburðinum og rannsóknaáætlanir viðkomandi stofnana auk frumrits reikninga vegna rannsókna sem áritaðir eru af yfirdýralækni eða sóttvarnalækni.
    • Úthlutanir sjóðsins eru eftir þörfum.

Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðinn, starfsreglur og úthlutunarreglur. 

Umsækjendur skulu sækja um styrk á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins á slóðinni https://minarsidur.stjr.is

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
14. Líf í vatni
9. Nýsköpun og uppbygging
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta