Menntaþing 2024 – dagskrá
Menntaþing 2024 er haldið mánudaginn 30. september kl. 9:00-15:30. Mikil aðsókn er á þingið – þegar eru fjögur hundruð skráðir til þátttöku á Hilton Reykjavík Nordica og um tvö hundruð til viðbótar í streymi. Endanleg dagskrá liggur nú fyrir.
Á þinginu verður rætt um stöðu menntakerfisins, hvað verið er að gera og næstu skref í menntaumbótum. Markmiðið er að opna samtal með gagnvirkri þátttöku þinggesta um næstu aðgerðaáætlun menntastefnu stjórnvalda fyrir árin 2024–2027. Fyrirhugaðar aðgerðir verða kynntar á þinginu og þær teknar fyrir í hópvinnu. Endurgjöfin verður nýtt við að fullmóta aðgerðaáætlunina.
Mennta- og barnamálaráðuneytið kallar eftir þátttöku þeirra fjölbreyttu aðila sem koma að menntun barna og annarra áhugasamra í umræðu, mótun og útfærslu aðgerða. Bætt hefur verið við sölum til að bregðast við mikilli aðsókn. Skráningarfrestur er til og með 25. september og er þátttaka þinggestum að kostnaðarlausu.