Ráðstefna um flutningalandið Ísland
Íslenski sjávarklasinn, Samtök atvinnulífsins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið efna til ráðstefnunnar Flutningalandið Ísland í Hörpu fimmtudaginn 14. nóvember kl. 12.30-15.30.
Boðið verður upp á fjölbreytta og áhugaverða dagskrá þar sem m.a. verður horft til tækifæra og ógnana framundan í þessari mikilvægu atvinnugrein.
Ráðstefnan fer fram í Norðurljósum í Hörpu. Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku.
Dagskrá
12.30 - Opnun Flutningalandsins 2019
- Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
12.40 - Framtíðin
- Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo
- Vilhelm Þorsteinsson, forstjóri Eimskips
- Lilja Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur og verkefnastjóri Borgarlínunnar
13.20 - Frumkvöðlamínútur
- Krít, Almar Guðmundsson
- Optitog, Halla Jónsdóttir
- Magnea bátar, Bjarni Hjartarson
- Greenvolt, Bala Kamallakharan
- Tracio, Stefán Jones
- Mínútustjóri er Berta Daníelsdóttir framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans
13.50 - Hlutverk atvinnulífsins í uppbyggingu innviða
- Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
14.05 - Kaffihlé
14.30 - Umræður - Verður Ísland samkeppnishæft í flutningum árið 2050?
- Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu
- Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar
- Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia
15.00 - Lokaorð: Samgöngur og framtíðin
- Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
15.30 - Dagskrárlok
Ráðstefnustjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis.