Mál nr. 79/2016 Úrskurður 26. september 2016
Mál nr. 79/2016 Eiginnafn: Arabella
Hinn 26. september 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 79/2016 en erindið barst nefndinni 23. september.
Eiginnafnið Arabella (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Arabellu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Arabella (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.