Hoppa yfir valmynd
19. nóvember 2012 Innviðaráðuneytið

Lög um Farsýsluna og Vegagerðina samþykkt

Samþykkt voru á Alþingi síðdegis í dag tvenn ný lög um sameiningu samgöngustofnana, annars vegar að stofnsetja Farsýsluna, sem fara skal með stjórnsýslu samgöngumála og hinsvegar Vegagerðina sem hefur það hlutverk að byggja upp, viðhalda og reka samgöngukerfi ríkisins. Frumvarp um Farsýsluna var samþykkt með 27 atkvæðum gegn 19 og 5 þingmenn sátu hjá og frumvarp um Vegagerðina samþykkt með 25 atkvæðum gegn 20 og sátu fimm þingmenn einnig hjá.

Með stofnun Farsýslunnar og hinnar nýju Vegagerðar verða til tvær nýjar stofnanir á grunni núverandi samgöngustofnana, þ.e. Siglingastofnunar Íslands, Flugmálastjórnar Íslands, Umferðarstofu og Vegagerðarinnar. Undirbúningur að endurskipulagningu samgöngustofnana hófst í framhaldi af stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar í júní 2008 þar sem settar voru fram tillögur um breytt stofnanakerfi samgöngumála. Í janúar 2009 skipaði þáverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nefnd um framtíðarskipan stofnana samgöngumála og kynnti hún nokkra valkosti með skýrslu sinni. Ákveðið var að hefja undirbúning að stofnun tveggja stofnana:

  • Stjórnsýslustofnunar með sameiningu Umferðarstofu, Flugmálastjórnar og stjórnsýsluverkefna Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar.
  • Framkvæmda- og rekstrarstofnunar með sameiningu framkvæmda- og rekstrarverkefna Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar.

Við atkvæðagreiðsluna sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra að með samþykkt laganna væri stigið gæfuspor, samgöngumál á öllum sviðum, í lofti, á sjó og jörðu, væru hugsuð uppá nýtt með hinu nýja stofnanakerfi sem lagað væri að þessari hugsun.

Á næstu vikum og mánuðum verður formleg stofnun Farsýslunnar og Vegagerðarinnar undirbúin en gert er ráð fyrir að starfsmönnum núverandi stofnana verði boðin störf við hinar nýju stofnanir. Samkvæmt hinum nýsamþykktu lögum eiga stofnanirnar að taka til starfa 1. júlí á næsta ári.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta