Reglugerð um ættleiðingarstyrki
Félagsmálaráðherra hefur sett reglugerð um ættleiðingarstyrki á grundvelli laga um ættleiðingarstyrki, nr. 152/2006. Í reglugerðinni er Vinnumálstofnun með skýrum hætti falin framkvæmd málaflokksins. Að auki er í reglugerðinni að finna ákvæði um á hvaða formi skila skuli inn umsóknum og hvaða gögn skuli fylgja þeim.
Reglugerð um ættleiðingarstyrki nr. 950/2007 (PDF, 191KB)