Fjarheilbrigðisþjónusta mikilvæg til að jafna aðgengi landsmanna
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði í opnunarávarpi sínu afskaplega mikilvægt að nýta nýjustu tækni til að jafna aðstöðu fólks og aðgengi að mikilvægri þjónustu, hvort sem um ræðir heilbrigðisþjónustu, menntun, menningu, samgöngur eða fjarskipti. Ráðherra sagði það eitt af markmiðum byggðaáætlunar stjórnvalda að jafna aðgengi almennings um land allt að almennri og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu. Alls væru 7 af 54 aðgerðum byggðaáætlunar tileinkaðar heilbrigðismálum, þeirra á meðal væru verkefni um fjarheilbrigðisþjónustu, fæðingarþjónustu og mæðravernd, héraðslækningar og aðgang að geðheilbrigðisþjónustu svo nokkuð væri nefnt.
Reynsla Svía og áform Íslendinga
Niclas Forsling, verkefnastjóri hjá Miðstöð fjarheilbrigðisþjónustu (Centre for Rural Medicine) í sveitarfélaginu Storuman í Norður-Svíþjóð, flutti fyrirlestur um reynslu Svía á þessu sviði. Hann kynnti sérstaklega formennskuverkefni Svía í Norrænu ráðherranefndinni í fyrra, sem ber heitið „Healthcare and care through distance spanning solutions“. Fyrirlestur hans var tekinn upp eins og allur fundurinn og hefst erindi hans eftir 15:30 mín.
Þá fjallaði Sigríður Jakobínudóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, um áform íslenskra stjórnvalda um að efla fjarheilbrigðisþjónustu til muna. Sigríður er fulltrúi í stýrinefnd samnorræna verkefnisins Vård och omsorg på distans (VOPD). Fyrirlestur Sigríðar hefst eftir 58:00 mín. í upptökunni.
Loks fluttu Sandra Brá Jóhannsdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps, og Auðbjörg B. Bjarnadóttir, hjúkrunarstjóri og ljósmóðir, fyrirlestur þar sem þær kynntu tilraunaverkefni á sviði fjarheilbrigðisþjónustu á Kirkjubæjarklaustri. Verkefnið hefur m.a. hlotið styrk á grundvelli byggðaáætlunar og hefur reynst vel. Fyrirlestur þeirra hefst eftir 1:29:35 klst.
+ Upptaka af fundinum
+ Aðgerðir byggðaáætlunar 2018-2024