Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 530/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 530/2023

Fimmtudaginn 1. febrúar 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. nóvember 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. október 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 28. maí 2023 og var umsóknin samþykkt 13. júní 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. október 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt í boðað viðtal hjá stofnuninni. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar skýringa hans, dags. 27. október 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. nóvember 2023, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn í málinu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. nóvember 2023. Með bréfi, dags. 8. nóvember 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 7. desember 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. desember 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að hann hafi ekki fengið greiddar atvinnuleysisbætur í tvo mánuði. Nú sé Vinnumálastofnun að setja á hann þriggja mánaða greiðslubann í viðbót. Kærandi hafi ekki séð viðtalsboðunina en stofnunin taki engar skýringar gildar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 28. maí 2023. Á umsókn hafi kærandi sagst vera reiðubúinn til að taka starfi frá og með 1. júní 2023. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt 13. júní 2023 og útreiknaður bótaréttur hafi verið 100%.

Þann 12. júlí 2023 hafi kæranda verið miðlað í starf hjá B. Þann 9. október 2023 hafi Vinnumálastofnun borist tilkynning frá sama atvinnurekanda um að kæranda hefði verið boðið í atvinnuviðtal sem hann hefði ekki mætt í. Með erindi, dags. 10. ágúst 2023, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á starfi hjá B. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ef atvinnuleitandi hefði hafnað atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Kæranda hafi verið veittur frestur í sjö virka daga til að veita stofnuninni skýringar sínar. Skýringar hafi ekki legið fyrir þegar mál kæranda hafi verið tekið til meðferðar. Með erindi, dags. 22. ágúst 2023, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar þess efnis að greiðslur atvinnuleysistryggingar til hans væru stöðvaðar í tvo mánuði frá þeim degi á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Skýringar kæranda hafi borist Vinnumálastofnun þann 22. ágúst 2023 þar sem fram komi að starfið hafi ekki hentað honum þar sem hann væri ekki búsettur á Akranesi. Hann væri búsettur í C og væri bílprófslaus. Í athugasemdum kæranda hafi einnig komið fram að hann væri þó að flytja aftur á Akranes þann 1. september 2023. Með erindi, dags. 28. ágúst 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að framkomnar upplýsingar hefðu ekki áhrif á ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. ágúst 2023, þar sem sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir nýjar skýringar í málinu.

Þann 19. september 2023 hafi kærandi verið boðaður til viðtals hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Viðtalið hafi átt að fara fram 21. september klukkan 09:30. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldmætingu væri að ræða og að skylt væri að tilkynna öll forföll á netfangið [email protected]. Þá hafi jafnframt verið tekið fram að ótilkynnt forföll, ásamt forföllum án gildra ástæðna, gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 19. september 2023 klukkan 12:07 á „Mínar síður“ kæranda. Kæranda hafi einnig verið send tilkynning um að hann ætti skilaboð inni á „Mínum síðum“ með tölvupósti og með smáskilaboðum í farsíma í uppgefið símanúmer og netfang.

Kærandi hafi hvorki mætt til boðaðs viðtals né boðað forföll. Með erindi, dags. 2. október 2023, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna fjarveru í boðað viðtal. Kæranda hafi verið greint frá því að ef hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði án gildra ástæðna kynni það að leiða til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Þá hafi kæranda verið greint frá því að ef atvinnuleitandi hafi áður sætt biðtíma eða viðurlögum á sama bótatímabili gæti komið til ítrekunaráhrifa. Kæranda hafi verið veittur frestur í sjö virka daga til að veita stofnuninni skýringar sínar. Engar skýringar hafi borist frá kæranda og með erindi, dags. 12. október 2023, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar þess efnis að vegna fjarveru í boðað viðtal væru greiðslur atvinnuleysistryggingar til hans stöðvaðar í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá hafi jafnframt verið tekið fram að sá tími myndi leggjast við þann tíma sem væri eftir af fyrri biðtíma. Greiðslur atvinnuleysistrygginga gætu því fyrst hafist eftir 3,65 mánuði frá sama degi.

Þann 27. október 2023 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda og beiðni um endurupptöku ákvörðunar stofnunarinnar frá 12. október 2023. Í skýringum kæranda komi fram að hann hafi ekki fengið tilkynningu í símann um að honum hafi borist tölvupóstur og því ekki séð skilaboð um boðun í viðtal. Í kjölfarið hafi mál kæranda verið tekið fyrir að nýju. Með erindi, dags. 3. nóvember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að framkomnar skýringar gæfu ekki tilefni til að breyta fyrri ákvörðun í máli hans, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í málinu.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Mál þetta varði ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. október 2023, um þriggja mánaða viðurlög á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna fjarveru kæranda í boðað viðtal.

Á meðal skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. liður 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggur að kærandi hafi ekki mætt til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 21. september 2023. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á ,,Mínum síðum“ um boðun í umrætt viðtal. Kærandi hafi fengið tæplega tveggja sólarhringa fyrirvara til að bregðast við boðun stofnunarinnar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæði 1. mgr. 58. gr. sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi fram að sá sem hafi áður sætt viðurlögum samkvæmt 57-59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir ef hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili samkvæmt 29. gr. Í 2. mgr. 61. gr. segi svo að þegar viðurlög eða biðtími hafi frestast leggist sá tími sem hafi verið eftir af fyrri viðurlagaákvörðun eða biðtíma saman við viðurlög samkvæmt 1. mgr.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það er fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysisbóta komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs viðtals lúti að því að hann hafi ekki fengið tilkynningu í síma sinn um boðun í umrætt viðtal. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi valið að vera í rafrænum samskiptum við Vinnumálastofnun þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta. Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi honum verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hennar með tölvupósti, skilaboðum inn á ,,Mínum síðum“ eða með smáskilaboðum. Kæranda hafi verið send boðun á „Mínar síður“ atvinnuleitanda, ásamt tilkynningu í uppgefið netfang og með smáskilaboðum í uppgefið símanúmer. Vinnumálastofnun meti því að kærandi hafi verið boðaður í framangreint viðtal hjá ráðgjafa með fullnægjandi og sannanlegum hætti, sbr. lokamálsliður 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Gera verði ríkar kröfur til atvinnuleitanda um að fylgjast með og bregðast við þeim tilkynningum og boðunum í vinnumarkaðsúrræði sem stofnunin sendi.

Í ljósi alls þess sem hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds viðtals hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og því beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á Akranesi þann 21. september 2023. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband við stofnunina ef eitthvað væri óljóst eða ef hann vildi frekari upplýsingar. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti í viðtalið. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi ekki séð viðtalsboðunina. Í fyrirliggjandi samskiptasögu kemur einnig fram að vegna stillinga í síma kæranda hafi tilkynningar um nýja tölvupósta ekki borist. Nú sé hins vegar búið að laga það.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 22. ágúst 2023 á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. október 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta