Stöður skólameistara í framhaldsskólum haustið 2017
Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur tekið ákvörðun varðandi stöður skólameistara eftirtalinna framhaldsskóla.
Menntaskólinn á Ísafirði
Hildur Halldórsdóttir hefur verið settur skólameistari tímabundið í eitt ár vegna námsleyfis Jóns Reynis Sigurvinssonar.
Framhaldsskólinn á Húsavík
Herdís Þuríður Sigurðardóttir hefur verið sett í embætti skólameistara til eins árs.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Staða skólameistara við Fjölbrautaskólann í Ármúla hefur verið auglýst með umsóknarfresti til 8. ágúst næstkomandi. Ólafur H. Sigurjónsson gegnir starfi skólameistara þar til ráðið hefur verið í stöðuna.
Menntaskólinn í Reykjavík
Staða rektors Menntaskólans í Reykjavík hefur verið auglýst með umsóknarfresti til 8. ágúst næstkomandi. Yngvi Pétursson gegnir starfi rektors þar til ráðið hefur verið í stöðuna.