Laust embætti forstöðumanns Fangelsisins Litla-Hrauni
Embætti forstöðumanns Fangelsisins Litla-Hrauni, sem dóms- og kirkjumálaráðherra veitir, er laust til umsóknar. Dóms- og kirkjumálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. febrúar 2009 til fimm ára.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Skuggasundi, 150 Reykjavík, eigi síðar en 15. janúar 2009.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 18. desember 2008.