Heimavinna í Washington og opnunartími sendiráðs
Starfsmenn sendiráðs Íslands í Washington vinna nú að heiman vegna samkomu- og útgöngutakmarkana í borginni vegna COVID-19 heimsfaraldursins.
Heimaskrifstofurnar eru fjölbreyttar, en það eru líka erindin sem við fáum frá Íslendingum og öllum þeim sem nú flýta heimför vegna faraldursins.
Íslendingar sem þurfa á aðstoð að halda geta haft samband við sendiráðið símleiðis í síma + 354 545 7832 eða á netfangið [email protected].
Opnunartími sendiráðsins er óbreyttur frá 9-16 alla virka daga. Utan almenns opnunartíma er borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins á vakt allan sólahringinn og hægt að hafa samband í síma +354 545-0-112, í [email protected] eða í gegnum facebook utanríkisráðuneytisins.