Áætluð úthlutun tekjujöfnunarframlaga 2009
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 22. október um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2009.
Úthlutunin fer fram á grundvelli 12. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. . Áætluð heildarfjárhæð framlaganna nemur um 1.241 milljónum króna.
Í dag koma ¾ hlutar af áætluðu framlagi til greiðslu eða samtals um 931 milljón króna. Uppgjör framlaganna fer fram fyrir áramót á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaganna.