Hoppa yfir valmynd
9. október 2020

Lýst yfir áhyggjum af framgöngu Kína í mannréttindamálum

Fastafulltrúi Þýskalands flytur yfirlýsinguna í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna - mynd

Ísland átti á dögunum hlut að sameiginlegu ávarpi 39 ríkja í almennri umræðu í þriðju nefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna (mannréttindanefndinni) í New York þar sem lýst var þungum áhyggjum af ástandi mannréttinda í héruðunum Xinjiang og Tíbet í Kína og þróun nýverið í Hong Kong.

Í ávarpinu var rifjað upp að fimmtíu sérstakir erindrekar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna sendu frá sér ákall í júní sl. þar sem farið var fram á það við stjórnvöld í Kína að virða mannréttindi, ekki síst í Xinjiang og Tíbet. Tóku ríkin þrjátíu og níu undir þetta ákall. Í Xinjiang-héraði hafa kínversk stjórnvöld verið gagnrýnd fyrir að neyða meira en milljón manns í eins konar „pólitískar endurmenntunarbúðir“. Lýstu ríkin jafnframt áhyggjum af fregnum af grófum mannréttindabrotum í þessu samhengi.

Þá deildu þau áhyggjum sem hópur sérfræðinga á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur lýst þess efnis að ný öryggislöggjöf í Hong Kong brjóti í bága við alþjóðlegar skuldbindingar Kína. Sérstaklega var lýst áhyggjum af ákvæðum um framsal fólks til meginlands Kína, þar sem þess bíði ákærur og fangelsisvist. Tryggja verður rétt fólks undir sáttmála Sameinuðu þjóðanna um félagsleg og pólitísk réttindi, sem og undir samkomulagi Kína og Bretlands um yfirráð yfir Hong Kong, sem víkja m.a. að málfrelsi, frelsi fjölmiðla og fundafrelsi.

Það var fastafulltrúi Þýskalands sem flutti ávarpið fyrir hönd ríkjanna þrjátíu og níu; en þau voru, auk Þýskalands og Íslands: Albanía, Austurríki, Ástralía, Bandaríkin, Belgía, Bosnía og Hersegóvína, Bretland, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Haítí, Holland, Hondúras, Írland, Ítalía, Japan, Kanada, Króatía, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Marshall-eyjar, Mónakó, Nauru, Norður Makedónía, Noregur, Nýja Sjáland, Palau, Pólland, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Sviss og Svíþjóð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta