Hoppa yfir valmynd
22. mars 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 7/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 7/2024

Föstudaginn 22. mars 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. janúar 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 6. október 2021 og var umsóknin samþykkt 27. október 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags 4. janúar 2024, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans væru stöðvaðar á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt í boðað viðtal.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. janúar 2024. Með bréfi, dags. 10. janúar 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 6. febrúar 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. febrúar 2024. Frekari efnislegar athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun hafi stöðvað greiðslur atvinnuleysisbóta til hans þar sem hann hafi ekki mætt á boðaðan fund stofnunarinnar 13. desember 2023 og hafi ekki skilað inn afriti af flugmiðum. Hann hafi sent Vinnumálastofnun skýringar að hann hafi verið hinum megin á landinu á þessum tíma. Varðandi afrit af flugmiðunum taki kærandi fram að hann hafi ekki verið með slíkt og því hafi atvinnuleysisbætur hans verið felldar niður í tvo mánuði. Öllum skýringum kæranda hafi verið hafnað og hann tekinn af atvinnuleysisbótum. Kærandi mótmæli þessu harðlega. Hann hafi nú þegar sætt viðurlögum og telji þessa ákvörðun Vinnumálastofnunar því ranga.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 6. október 2021. Með erindi, dags. 27. október 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 55%.

Þann 11. september 2023 hafi Vinnumálastofnun borist ábending um dvöl kæranda erlendis og hafi kærandi verið boðaður til viðtals hjá ráðgjafa á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar. Athygli hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Kærandi hafi boðað forföll sín til umrædds viðtals sökum þess að hann hefði þurft að yfirgefa landið vegna fjölskylduaðstæðna. Þess hafi verið óskað að kærandi sendi inn flugfarseðla vegna þeirrar ferðar með tölvupósti en tilkynningar kæranda um forföll hafi farið fram í gegnum tölvupóstsamskipti.

Með erindi, dags. 13. september 2023, hafi verið óskað eftir frekari skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs viðtals þann 12. september 2023. Áréttað hafi verið að ef hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Vinnumálastofnun hafi borist skýringar kæranda þann 16. september 2023. Kærandi hafi sagt móður sína alvarlega veika og að hann hefði engar afsakanir.

Með erindi, dags. 25. september 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði sökum þess að hann mætti ekki til boðaðs viðtals þann 12. september 2023. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í desember hafi kærandi verið skráður á námskeið/hópfund á vegum Vinnumálastofnunar á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík. Vinnumarkaðsúrræðið hafi átt að fara fram þann 13. desember 2023 klukkan 14:00. Boðun hafi verið send á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang og í farsíma þann 12. desember 2023 klukkan 13:20. Kæranda hafi verið tjáð að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að boða án ástæðulausrar tafar. Athygli hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar.

Kærandi hafi hvorki boðað forföll né mætt í úrræðið. Með erindi, dags. 19. desember 2023, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs vinnumarkaðsúrræðis þann 13. desember 2023. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Beiðnin frá 25. september 2023 hafi verið ítrekuð um að kærandi sendi inn flugfarseðla vegna ferðar erlendis í september.

Vinnumálastofnun hafi borist skýringar kæranda þann 21. desember 2023. Að sögn kæranda hafi hann sent skýringar þann 12. desember 2023 en engar skýringar hafi borist frá kæranda þann dag.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2024, um stöðvun greiðslna á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 4. mgr. sömu greinar þar sem kærandi hafði nýtt bótarétt sinn í rúma 25 mánuði, hafi verið tilkynnt kæranda samdægurs. Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2024, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 4. janúar 2024. Í kæru greini kærandi meðal annars frá því að hann hafi verið hinum megin á landinu þegar fundurinn hafi átt sér stað og árétti þegar framkomnar skýringar að innsending farseðla væri óþörf þar sem hann hafi þegar sætt viðurlögum vegna þess.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Á meðal skilyrða greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skulu boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni, en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara á þá skrifstofu sem næst sé lögheimili þeirra.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík í tvígang, en kærandi hafi skráð þá skrifstofu sem þjónustuskrifstofu sína. Umrætt viðtal hafi átt að fara fram 12. september 2023. Boðun til umrædds viðtals hafi verið send á „Mínar síður“, með tilkynningu á uppgefið netfang og í farsíma. Boðun til umrædds viðtals hafi borist kæranda með sannanlegum hætti og hafi honum verið veittur sólarhringsfyrirvari, sbr. 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi boðað forföll sín til umrædds viðtals. Í tölvupósti hafi kærandi sagst dvelja erlendis. Þegar svo hátti til sé atvinnuleitendum gert að upplýsa nánar um ferðatilhögun sína, til að mynda með innsendingu farseðla. Kærandi hafi í engu sinnt beiðni um innsendingu gagna og sent takmarkaðar skýringar á ferðum sínum. Jafnframt hafi kærandi staðfest að hann væri meðvitaður um að fjarvera til umrædds viðtals kynni að leiða til viðurlaga.

Kærandi hafi hvorki mætt til boðaðs viðtals á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík í september né í vinnumarkaðsúrræði í desember 2023. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um, komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í september 2023 lúti að því að hann hafi þurft að fara til heimalands síns vegna veikinda móður sinnar. Þá séu skýringar vegna fjarveru á hópfundi í desember sem fram komi í kæru þess eðlis að hann hafi verið hinum megin á landinu þegar fundurinn hafi átt sér stað.

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að ekki hafi verið réttlætanlegt af hálfu kæranda að mæta ekki til viðtals í september 2023 vegna dvalar erlendis, enda hafi hann ekki tilkynnt um þá ferð fyrir fram. Þá sé það afstaða Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda þess efnis að hann væri staddur hinum megin á landinu teljist ekki gildar fyrir fjarveru hans á boðaðan fund í desember 2023.

Í ljósi alls framangreinds, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds viðtals eða í boðað vinnumarkaðsúrræði hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræðum og því beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé mælt fyrir um sérstök viðurlög í þeim tilfellum sem atvinnuleitandi hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama bótatímabili. Í ákvæðinu segi að þegar svo hátti til skuli atvinnuleitandi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr laganna. Ákvæði 31. gr. laga um atvinnuleysistryggingar mæli fyrir um það hvernig nýtt bótatímabil hefjist áður en fyrra tímabili ljúki að fullu. Samkvæmt ákvæðinu þurfi atvinnuleitandi að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur til að öðlast rétt á nýju bótatímabili.

Kærandi hafði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í rúmlega 25 mánuði á bótatímabili sínu þegar atvik hafi átt sér stað í desember 2023. Kærandi skuli því sæta viðurlögum á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi geti því fyrst átt rétt á atvinnuleysisbótum að nýju eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 1. mgr. og 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna. Þá segir í 4. mgr. 58. gr. laganna að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðaður á námskeið á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 12. desember 2023 sem fara átti fram daginn eftir, þann 13. desember klukkan 14:00. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var kærandi upplýstur um að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi hefur gefið þær skýringar fyrir úrskurðarnefndinni að hann hafi verið hinum megin á landinu þegar námskeiðið hafi verið haldið og hafi því ekki komist. 

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tölvupósti, smáskilaboðum í farsíma og skilaboðum á „Mínum síðum“.  Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Þegar kærandi var beittur viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laganna hafði hann þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun í 25 mánuði. Því voru atvinnuleysisbætur til hans stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 og á kærandi því ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 1., sbr. 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta