Mál nr. 52/2016 Úrskurður 3. júní 2016
Mál nr. 52/2016 Eiginnafn: Kikka
Hinn 3. júní 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 52/2016 en erindið barst nefndinni 23. maí:
Eiginnafnið Kikka (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kikku, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Kikka (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.