Mál nr. 70/2018 úrskurður 20. september 2018
Mál nr. 70/2018 Millinafn: Bell
Hinn 20. september 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 70/2018 en erindið barst nefndinni 22. ágúst.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:
-
millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslenskumáli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
-
nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
-
millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Millinafnið Bell er hvorki dregið af íslenskum orðstofni né hefur áunnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið uppfyllir þannig ekki skilyrði ákvæðis 6. gr. fyrrnefndra laga og því ekki unnt að fallast á það.
Úrskurðarorð:
Ekki er fallist á beiðni um millinafnið Bell.