Hoppa yfir valmynd
22. september 2019 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra sækir leiðtogafund um loftslagsmál á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sækir leiðtogafund um loftslagsmál á 74. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem stendur yfir þessa dagana í New York. Loftslagsfundurinn er haldinn að frumkvæði aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, þar sem hann kallar eftir afgerandi forystu leiðtoga heims á vettvangi loftslagsbreytinga og hvetur ríki til þess að grípa til róttækra aðgerða til þess að forðast verstu afleiðingar loftslagsvánnar og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. 

Forsætisráðherra mun einnig sækja leiðtogafund um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur leiðtogafundur er haldinn frá því að heimsmarkmiðin voru samþykkt árið 2015.

Leiðtogafundurinn mun jafnframt samþykkja sérstaka yfirlýsingu þar sem áréttaðar eru þær skuldbindingar sem ríki hafa samþykkt með heimsmarkmiðunum um að engir einstaklingar eða hópar verði skildir eftir, fátækt og hungri verði útrýmt, komið verði á jafnrétti kynjanna, gæði menntunar verði aukin og ríki virði skuldbindingar sínar í loftslagsmálum, o.fl.

Forsætisráðherra mun á fundinum stjórna einni af sex pallborðsumræðum leiðtoga, ásamt forseta Kosta Ríka: Leaders Dialogue 2 –  „Accelerating the achievement of the Sustainable Development Goals: Critical entry points.“

Í leiðtogavikunni mun forsætisráðherra einnig eiga tvíhliða fundi með þjóðarleiðtogum og taka þátt í ýmsum hliðarviðburðum um jafnréttis- og loftslagsmál í tengslum við allsherjarþingið á næstu dögum.


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

1 Engin fátækt
2. Ekkert hungur
4. Menntun fyrir öll
5. Jafnrétti kynjanna
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta