Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 590/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 590/2023

Fimmtudaginn 11. apríl 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. desember 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. nóvember 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 17. júlí 2023 og var umsóknin samþykkt 17. ágúst 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. nóvember 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað atvinnuviðtali B. Í kjölfar skýringa frá kæranda sem bárust Vinnumálastofnun 24. nóvember 2023 var mál hans tekið fyrir að nýju. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. nóvember 2023, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir ný gögn í málinu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. desember 2023. Með bréfi, dags. 13. desember 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 3. janúar 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. janúar 2024. Athugasemdir bárust ekki. Með erindi úrskurðarnefndar til Vinnumálastofnunar, dags. 15. mars 2024, var óskað eftir upplýsingum um með hvaða hætti kærandi hafi verið boðaður í atvinnuviðtal hjá B. Svar barst frá stofnuninni 25. mars 2024.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa týnt farsíma sínum í lok október 2023 og að hann eigi ekki fartölvu. Hann hafi því ekki haft aðgang að internetinu til að sjá skilaboð. Kærandi hafi ekki haft efni á að kaupa nýjan síma fyrr en eftir að hafa fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Þá hafi kærandi haft samband við fyrirtækið og lýst yfir áhuga og vilja til að starfa þar en því miður hafi það verið of seint. Kærandi óski eftir að mál hans verði endurskoðað. Einnig hafi kærandi átt við heilsufarsvandamál að stríða og meðal annars legið á spítala í einhverja daga.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 17. júlí [2023]. Með erindi, dags. 17. ágúst [2023], hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 31. október 2023 hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað atvinnuviðtal hjá B. Um hafi verið að ræða starf við niðurrif bifreiða og lagerstörf. Samkvæmt upplýsingum frá atvinnurekanda hafi kærandi hvorki svarað boðun í atvinnuviðtal né mætt í boðað atvinnuviðtal. Með erindi, dags. 13. nóvember 2023, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnuviðtal hjá B. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að ef atvinnuleitandi hefði hafnað atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Þann 23. nóvember 2023 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar frá kæranda þar sem fram komi að hann hafi týnt símtæki sínu og ekki haft aðgang að tölvu né interneti. Með erindi, dags. 23. nóvember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans væru stöðvaðar í tvo mánuði. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 6. desember 2023 hafi kærandi sent frekari skýringar og beiðni um endurupptöku málsins. Í skýringum kæranda komi fram að hann hafi verið á sjúkrahúsi í fjóra daga frá mánudeginum 4. desember. Hann væri síðan á leið í áfengismeðferð. Þann 8. desember 2023 hafi kærandi sent læknisvottorð, dags. 7. desember 2023. Þar komi fram að kærandi hafi legið inn á sjúkrahúsi á tímabilunum 7. til 9. nóvember og 4. til 8. desember 2023. Kæranda hafi verið tilkynnt, með erindi, dags. 11. desember 2023, að fyrri ákvörðun væri staðfest, enda hefðu nýjar skýringar og gögn í máli kæranda ekki leitt til annarrar niðurstöðu.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir leiti nýs starfs. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Við móttöku umsóknar um atvinnuleysistryggingar veiti Vinnumálastofnun öllum atvinnuleitendum leiðbeiningar um hvar finna megi upplýsingar um réttindi og skyldur þeirra. Öllum atvinnuleitendum sé þannig vísað á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem meðal annars sé að finna skýrar upplýsingar um afleiðingar þess að hafna starfi án gildra ástæðna. Ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar séu skýr hvað varði skyldu atvinnuleitanda til að taka störfum sem séu í boði og um höfnun á atvinnuviðtölum. 

Fyrir liggi að kærandi hafi fengið boð um atvinnuviðtal hjá B. Í skýringum kæranda hafi komið fram að hann hafi týnt símtæki sínu, hafi ekki haft aðgang að interneti og hafi á tímabilunum 7. til 9. nóvember og 4. til 8. desember 2023 legið á sjúkrahúsi. Í þeim tilfellum sem atvinnuleitandi hafni atvinnuviðtali komi til álita hvort skýringar hans vegna höfnunar á umræddu starfi séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. 57. gr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna atvinnuviðtali hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé því gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnuviðtali með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum. Við móttöku umsóknar um atvinnuleysistryggingar veiti Vinnumálastofnun öllum atvinnuleitendum leiðbeiningar um hvar finna megi upplýsingar um réttindi og skyldur þeirra. Öllum atvinnuleitendum sé þannig vísað á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem meðal annars sé að finna skýrar upplýsingar um afleiðingar þess að hafna starfi án gildra ástæðna. Ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar séu skýr hvað varði skyldu atvinnuleitanda til að taka störfum sem séu í boði og um höfnun á atvinnuviðtölum. 

Rökstuðningur kæranda í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála sé samhljóða þeim skýringum sem hafi legið fyrir þegar ákvörðun um viðurlög á grundvelli 57. gr. hafi verið tekin og viðbótarskýringum og gögnum sem hafi legið fyrir þegar mál hans hafi verið tekið til endurumfjöllunar í tvígang. Þær skýringar snúi að því að hann hafi týnt símtæki sínu, hafi ekki aðgang að interneti og hafi á tímabilunum 7. til 9. nóvember og 4. til 8. desember 2023 legið á sjúkrahúsi. Kærandi hafi í umsókn sinni valið að vera í rafrænum samskiptum við Vinnumálastofnun og hafi meðal annars verið tilkynnt við samþykkt umsóknar hans að stofnunin myndi framvegis koma skilaboðum áleiðis í gegnum „Mínar síður“ atvinnuleitenda, með tölvupósti eða smáskilaboðum. Þá sé forsenda þess að hægt sé að miðla kæranda í störf eða vinnumarkaðsúrræði að stofnunin og atvinnurekendur geti haft samband við hann. Ábyrgð kæranda sé því rík hvað þetta varði. Auk þess sem atvinnuleitendur hafi ríka skyldu samkvæmt 2. mgr. 14. gr. til að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem verði á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti, þar á meðal um tilfallandi veikindi án ástæðulausrar tafar. Engin tilkynning hafi borist frá atvinnurekanda. Þá liggi jafnframt fyrir að samkvæmt innsendu læknisvottorði hafi kærandi dvalið á sjúkrahúsi eftir að honum hafi verið boðið í atvinnuviðtal hjá B sem hafi farið fram í október 2023.

Skýringar kæranda séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnuviðtali samkvæmt 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta biðtíma á grundvelli ákvæðisins.

Með vísan til alls framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna höfnunar á atvinnuviðtali geti ekki talist gildar í skilningi laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Í athugasemdum við 57. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 kemur fram:

„Enn fremur þykir mikilvægt að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem býðst. Ástæðan er einkum sú að atvinnuviðtal er venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þykir það mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við því að hafna starfi. Verður að teljast óeðlilegt að hinn tryggði geti neitað því að fara í atvinnuviðtal án viðbragða frá kerfinu en þeir sem fóru í viðtalið og var boðið starfið þurfi að þola biðtíma eftir atvinnuleysisbótum taki þeir ekki starfinu.“

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda miðlað í starf hjá B 26. október 2023. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun 31. október 2023 að kærandi hefði hvorki svarað né mætt í boðað atvinnuviðtal. Í svari Vinnumálastofnunar, dags. 25. mars 2024, kemur fram að kærandi hafi verið boðaður í atvinnuviðtalið með tölvupósti 30. október 2023. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi týnt farsíma sínum í lok október 2023 og að hann eigi ekki fartölvu. Hann hafi því ekki haft aðgang að internetinu til að sjá skilaboð.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram gildar skýringar fyrir því að hafa ekki sinnt boðuðu atvinnuviðtali. Kæranda bar að tryggja það að skilaboð frá atvinnurekendum myndu skila sér til hans en eitt af grundvallar skilyrðum þess að vera tryggður samkvæmt lögum nr. 54/2006 er að hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara, sbr. d. lið 14. gr. laganna. Þar sem kærandi mætti ekki í atvinnuviðtal hjá B kom réttilega til viðurlaga á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. nóvember 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum