Mál nr. 2/2013, úrskurður 9. janúar 2013
Mál nr. 2/2013 Eiginnafn: Holger
Hinn 9. janúar 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 2/2013 en erindið barst nefndinni 19. desember 2012:
Eiginnafnið Holger (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Holgers, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Holger (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.