Mál nr. 130/2023 Úrskurður 24. janúar 2024
Mál nr. 130/2023 Eiginnafn: Föld (kvk.)
Hinn 24. janúar 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 130/2023 en erindið barst nefndinni 22. desember 2023.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Föld (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Faldar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Föld (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.