Hoppa yfir valmynd
28. ágúst 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 241/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 241/2024

Miðvikudaginn 28. ágúst 2024

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 28. maí 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 28. maí 2024 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2023.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2023 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 55.655 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 28. maí 2024.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. maí 2024. Með bréfi, dags. 4. júní 2024, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 20. júní 2024, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Með kæru fylgdi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 28. maí 2024, um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2023. Engin rök eða sjónarmið eru færð fram í kæru.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram kærð sé niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2023.

Í 30. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, varðandi hvað skuli teljast til tekna við útreikning örorkulífeyris. Til tekna teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga um tekjuskatt að teknu tilliti til ákvæða sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 1. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 47. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009, um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, þá skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt. 34. gr. laga um almannatryggingar. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Málavextir séu þeir að allt árið 2023 hafi kærandi verið með grunnlífeyri örorkulífeyris, tekjutryggingu, aldurstengda örorkuuppbót, heimilisuppbót og sérstaka uppbót til framfærslu. Kæranda hafi verið tilkynnt um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2023 með bréfi, dags. 28. maí 2024. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 55.655 kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu og áður myndaðra krafna.

Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að endanlegar tekjur kæranda á árinu 2023 hafi reynst hærri en tekjuáætlanir kæranda á árinu hafði gert ráð fyrir og greitt hafi verið eftir flesta mánuði ársins. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi fengið senda tillögu að tekjuáætlun þann 13. desember 2022 ásamt bréfi þar sem hafi komið fram væntanlegar tekjur kæranda árið 2023 og að hann þyrfti að fara yfir hana og leiðrétta ef hann teldi hana ekki endurspegla væntanlegar tekjur ársins 2023 þar sem tekjuáætlunin væri á ábyrgð kæranda. Samkvæmt tillögunni hafði verið gert ráð fyrir að árið 2023 hafi kærandi haft 3.585.216 kr. í lífeyrissjóðstekjur.

Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 1. mars 2023, var kæranda tilkynnt að stofnunin hefði skráð nýja tekjuáætlun hjá honum sem byggð væri á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá Skattsins. Á grundvelli hennar hefði bótaréttur ársins verið endurreiknaður og að fyrir lægi ofgreiðsla að fjárhæð 9.760 kr. sem yrði ekki innheimt fyrr en að loknu uppgjöri bóta ársins. Í þessari nýju tekjuáætlun hafi verið gert ráð fyrir að lífeyrissjóðstekjur kæranda væru 3.679.249 kr.

Kærandi hafi skilað inn nýrri tekjuáætlun þann 31. ágúst 2023 þar sem komið hafi fram lífeyrissjóðstekjur að fjárhæð 3.814.000 kr. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 15. september 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans hefði verið endurreiknaður og að fyrir lægi ofgreiðsla að fjárhæð 42.319 kr. sem yrði ekki innheimt fyrr en að loknu uppgjöri bóta ársins.

Við bótauppgjör ársins 2023 hafi komið í ljós að á árinu 2023 hafi kærandi verið með 3.794.960 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 53.164 kr. í vexti og verðbætur.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2023 hafi verið sú að kærandi hafi fengið greitt á árinu 2.468.300 kr. en hefði átt að fá greitt 2.362.878 kr. Þetta hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 55.655 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu og áður myndaðra skulda að fjárhæð samtals 52.079 kr., sem höfðu myndast vegna breytinga á árinu 2023.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur vera fyrir hendi til að breyta ákvörðun um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2023. Stofnunin telji að miðað við fyrirliggjandi gögn þá sé ljóst að afgreiðsla málsins hafi að fullu og öllu verið í samræmi við lög, reglur og góða stjórnsýsluhætti.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2023.

Kærandi fékk greiddan örorkulífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun á árinu 2023. Samkvæmt 47. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 30. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 1. mgr. greinarinnar segir að til tekna samkvæmt VI. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt með tilteknum undantekningum. Á grundvelli 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 34. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins gerði tillaga Tryggingastofnunar að tekjuáætlun, dags. 13. desember 2022, ráð fyrir kærandi fengi á árinu 3.585.216 kr. í lífeyrissjóðstekjur. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar út frá þessum tekjuforsendum. Í kjölfar samtímaeftirlits Tryggingastofnunar við staðgreiðsluskrá kom í ljós að tekjur kæranda reyndust hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun. Var í kjölfarið útbúin ný tekjuáætlun sem kæranda var upplýstur um með bréfi, dags. 1. mars 2023, en þar var gert ráð fyrir 3.679.249 kr. í lífeyrissjóðstekjur. Í framangreindu bréfi var kærandi upplýstur um áætlaða kröfu að fjárhæð 9.760 kr. Bótaréttindi kæranda voru reiknuð á ný út frá þessum tekjuforsendum. Kærandi lagði fram breytta tekjuáætlun 31. ágúst 2023 þar sem lífeyrissjóðstekjur voru hækkaðar í 3.819.000 kr. á árinu. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 15. september 2023, var innsend tekjuáætlun kæranda samþykkt og hann jafnframt upplýstur um áætlaða ofgreiðsla að fjárhæð 42.319 kr.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2023 reyndust tekjur kæranda hafa verið 3.794.960 kr. lífeyrissjóðstekjur og 53.164 kr. í fjármagnstekjur. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins leiddi í ljós 55.655 kr. ofgreiðslu á árinu 2023 að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu, nánar tiltekið var um ofgreiðslu að ræða í bótaflokknum sérstakri uppbót til framfærslu sökum tekna.

Samkvæmt framangreindu reyndust tekjur kæranda vera hærri á árinu 2023 en gert hafði verið ráð fyrir. Um var að ræða lífeyrissjóðstekjur og fjármagnstekjur sem eru tekjustofnar sem hafa áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 30. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar og C-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum kæranda á árinu 2023.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2023, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta